Sport

Dagskráin í dag: Subway-deild karla og Arsenal í Evrópudeildinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Arsenal verður í eldlínunni í kvöld.
Arsenal verður í eldlínunni í kvöld. Vísir/Getty

Það styttist í lok deildakeppninnar í Subway-deild karla og spennandi leikir á dagskránni í kvöld. Þá verður Arsenal í eldlínunni í Evrópudeildinni í knattspyrnu.

Stöð 2 Sport

Körfuboltinn rúllar af stað klukkan 17:00 þegar Hörður Unnsteinsson mætir í stúdíó ásamt sérfræðingum og fer yfir síðustu umferðina í Subway-deild kvenna í körfuknattleik.

Rúmum klukkutíma síðar hefst útsending frá leik Njarðvíkur og Þór frá Þorlákshöfn í Subway-deild karla. Njarðvík er búið að vera sjóðandi heitt að undanförnu en Þórsliðið er að vakna til lífsins eftir erfiða byrjun á Íslandsmótinu.

Klukkan 20:05 verður síðan bein útsending frá botnslag ÍR og KR þar sem Vesturbæjarstórveldið fellur í fyrstu deild með tapi.

Körfuboltaveislunni lýkur síðan með Subway-tilþrifunum klukkan 22:00 þar sem farið verður yfir leiki kvöldsins.

Stöð 2 Sport 2

Topplið ensku úrvalsdeildarinnar Arsenal mætir Sporting frá Portúgal í Evrópudeildinni og hefst útsending frá leiknum klukkan 17:35. Í sömu keppni mætast síðan Juventus og Freiburg og verður sá leikur í beinni frá klukkan 19:50.

Stöð 2 Sport 3

Anderlecht og Villareal mætast í Sambandsdeildinni 9klukkan 17:35 og síðar um kvöldið mætast Shakhtar Donetsk og Feyenoord í sömu keppni. Útsending frá þeim leik hefst 19:50.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 3:00 hófst útsending frá Asia Pacific meistaramótinu í golfi kvenna.

Stöð 2 Esport

Áskorendastig stórmeistaramótsins í CS:GO verður sýnt í beinni útsendingu klukkan 19:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×