Hamilton hafði áður talað um að Mercedes liðið væri að fara aftur á bak en það gerði hann efir að hafa bara endað í fimmta sæti í fyrsta kappakstri tímabilsins.
Nú gekk hann enn lengra og sagði hönnuða Mercedes ekki nýta sér reynslu sína sem sjöfalds heimsmeistara.
"I know what a car need needs. I know what a car doesn't need"
— Sky Sports F1 (@SkySportsF1) March 9, 2023
Lewis Hamilton says Mercedes did not listen to his concerns over their 2023 car pic.twitter.com/7RluF3OtDN
„Á síðasta voru atriði sem ég sagði þeim frá. Ég sagði þeim frá hvaða vandamál væru hjá bílnum,“ sagði Lewis Hamilton í hlaðvarpsþættinum „Chequered Flag“ á BBC Radio 5 Live.
„Ég hef keyrt svo marga bíla í mínu lífi og ég veit því hvað kappakstursbíll þarf á að halda. Ég veit vel hvað bíll þarfnast ekki. Þetta snýst um að taka ábyrgð,“ sagði Hamilton.
„Þetta snýst um að standa upp og segja: Já veistu hvað? Við hlustuðum ekki á þig. Hann er ekki á þeim stað sem hann þarf að vera og við þurfum að vinna í því,“ sagði Hamilton.
„Við verðum að skoða jafnvægið í beygjunum, skoða alla veiku staðina og sameinast sem lið. Það er það sem við verðum að gera,“ sagði Hamilton.
Hinn 38 ára gamli Hamilton hefur unnið fleiri kappakstra á ferlinum heldur en allir aðrir ökumenn formúlu eitt eða 103 þá er hann jafn Michael Schumacher með sjö heimsmeistaratitla.
Hann vann hins vegar ekki einn kappakstur á síðasta tímabili, í fyrsta sinn á ferlinum, og endaði að lokum í sjötta sæti eftir að hafa verið númer eitt eða tvö á átta tímabilum í röð.
„Við erum enn þá margfaldir heimsmeistarar. Við höfum bara ekki náð þessu réttu núna og við gerðum það heldur ekki í fyrra. Það þýðir að við getum ekki lagað það í næstu framtíð,“ sagði Hamilton.