Innlent

Gul við­vörun á Suð­austur­landi

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
vedurnota.jpg
Veðurstofan

Gul veðurviðvörun verður á Suðausturlandi á morgun. Viðvörunin tekur gildi klukkan 11.

Í tilkynningu Veðurstofu kemur fram að búist sé við norðan hvassviðri eða stormi, 15-25 m/s. B

Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll staðbundið yfir 33 m/s, í Öræfum og austan Öræfa, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.

Búast má við samgöngutruflunum og sandfoki og eru afmarkaðar lokanir á vegum líklegar.

Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×