Sonurinn var stundvís líkt og foreldrar sínir samkvæmt Instagram-færslu Sögu og Villa en hann kom í heiminn sex tímum fyrir settan dag.
Saga er einn vinsælasti ljósmyndari landsins og hefur einnig lagt stund á myndlist. Þá hefur hún einnig leikstýrt nokkrum auglýsingum og sjónvarpsþáttum.
Vilhelm var söngvari hljómsveitarinnar 200.000 naglbítar og hefur gefið út fjölda bóka og sjónvarpsþátta sem Vísinda Villi. Þá er hann einnig að spreyta sig í myndlistinni.
Vala Matt heimsótti Sögu og Villa í íbúð þeirra í Reykjavík á síðasta ári í Ísland í dag.