Lífið

Moore birti hjart­næmt mynd­band á af­mæli Willis

Máni Snær Þorláksson skrifar
Bruce Willis og Demi Moore árið 2018 eftir að Moore hafði tekið þátt í að gera grín að Willis í þættinum Comedy Central Roast of Bruce Willis.
Bruce Willis og Demi Moore árið 2018 eftir að Moore hafði tekið þátt í að gera grín að Willis í þættinum Comedy Central Roast of Bruce Willis. Getty/Phil Faraone

Hjartnæmt myndband sem leikkonan Demi Moore birti í tilefni 68 ára afmælis fyrrverandi eiginmanns síns, leikarans Bruce Willis, hefur vakið gífurlega athygli. Ljóst er að samband Moore og Willis er ennþá gott þrátt fyrir að rúmir tveir áratugir eru liðnir síðan þau skildu.

Moore og Willis giftust árið 1987 og skildu þrettán árum síðar. Þau eiga saman þrjár dætur, Scout, Tallulah og Rumer. Sú síðastnefnda eignaðist einmitt barn í lok síðasta árs og gerði þannig Moore og Willis að ömmu og afa.

Bruce Willis og Demi Moore árið 1997, þegar þau voru gift. Getty/Kevin Mazur

Í myndbandinu sem Moore birti á Instagram-síðu sinni má sjá Bruce Willis fagna afmælinu sínu með fjölskyldunni. Ásamt Moore var Emma Heming Willis, núverandi eiginkona leikarans, börn þeirra og fleiri fjölskyldumeðlimir á svæðinu.

„Til hamingju með afmælið BW! Svo glöð að við gátum fagnað þér í dag. Ég elska þig og ég elska fjölskylduna okkar. Þakkir til allra fyrir ástina og heillaóskirnar - við finnum öll fyrir þeim,“ skrifar Moore við myndbandið sem sjá má hér fyrir neðan.

Í fyrra var greint frá því að leikaraferill Willis væri á enda þar sem hann hafði greinst með málstol. Í byrjun þessa árs kom svo tilkynning frá fjölskyldu leikarans um að hann hefði greinst með framheilabilun. Þau sögðu það vera mikinn létti að hann væri kominn með skýra greiningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.