Þetta kemur fram í gögnum frá Þjóðskrá yfir mannanöfn sem gefin voru á síðasta ári. Hástökkvari ársins er nafnið Viktor sem var næstvinsælasta nafn síðasta árs en nafnið var í þrítugasta sæti fyrir árið 2021.
Aron, sem hefur verið vinsælasta eiginnafn drengja síðustu ára, er að þessu sinni í þriðja sæti en alls fengu 28 það nafn í fyrra.
Aþena var næst vinsælasta stúlknanafn síðasta árs og Emma þar á eftir. 26 stúlkur fengu nafnið Aþena á meðan 23 fengu nafnið Emma.
Vinsælasta annað eiginnafn síðasta árs var Þór en 83 drengir fengu það sem annað eiginnafn. Rós var vinsælasta annað eiginnafn stúlkna en alls fengu 45 það nafn í fyrra.

Þegar horft er á samanburð milli ára má sjá að drengjanafnið Þór stendur í stað frá fyrra ári og heldur fyrsta sæti. Hrafn fer úr níunda sæti í annað og Máni stendur í stað í því þriðja. Hvað nöfn stúlkna varðar má sjá að Rós trónir á toppnum líkt og í fyrra. Sól fer upp úr fimmta sæti í annað sætið og Ósk stendur í stað frá fyrra ári.