Lífið

Harry Potter-stjarna fjölgar muggkyninu

Kjartan Kjartansson skrifar
Daniel Radcliffe var galdastrákur í kvikmyndunum um Harry Potter en í raunveruleikanum er hann muggi.
Daniel Radcliffe var galdastrákur í kvikmyndunum um Harry Potter en í raunveruleikanum er hann muggi. Vísir/EPA

Enski leikarinn Daniel Radcliffe, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á töfrastráknum Harry Potter, og Erin Darke, bandarísk kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið hefur verið saman í tíu ár.

Talsmaður Radcliffe staðfesti við Hollywood Reporter í gær að Darke væri með barni. Þau kynntust við tökur á kvikmyndinni „Kill your darlings“ árið 2013 þar sem Radcliffe lék skáldið Allen Ginsberg en Darke konu sem átti í ástarævintýri með honum.

Radcliffe, sem er 33 ára gamall, er ekki mikið fyrir að tala um einkalíf sitt og hann er ekki á samfélagsmiðlum. Í viðtali í fyrra sagði hann að frá því að hann hætti að drekka áfengi væri einkalíf hans ekki nógu áhugavert til þess að rata í fréttirnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.