Rolling Fork er í Sharkeysýslu en þessi stóri hvirfilbylur olli einnig miklum skemmdum í Silver City í Humpreysýslu.
AP fréttaveitan segir Sharkey- og Humpreysýslur, þar sem skemmdirnar eru mestar, vera fátækar sýslur. Margir íbúar eigi erfitt með að ná endum saman en fólk hefur kallað eftir aðstoð við að koma sér aftur á lappirnar eftir hamfarirnar.
„Þetta verður löng endurbygging, að reyna að byggja upp á nýtt og komast yfir eyðilegginguna,“ sagði Wayne Williams við AP. Hann er smíðakennari í Rolling Ford.
Myndefni frá Rolling Ford sýnir glögglega hve öflugur hvirfilbylurinn hefur verið, en hann reif upp heilu húsin og flutningabíla á loft.
Samkvæmt frétt Washington Post er hvirfilbylurinn talinn hafa lent og skafið nærri því hundrað kílómetra slóð í jörðina. Veðurstofa Bandaríkjanna segir minna en eitt prósent hvirfilbylja sem lenda í Bandaríkjunum fara lengra en áttatíu kílómetra.
Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar en tiltölulega stutt er síðan veðrið lék íbúa Rolling Fork einnig grátt. Árið 2019 fóru umfangsmikil flóð yfir bæinn og þurftu margir að yfirgefa heimili sín.
Drónamyndbandið hér að neðan sýnir vel hve umfangsmiklar skemmdirnar eru.