Lífið

Renner birtir mynd­skeið af sér að ganga

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jeremy Renner birti þessa mynd af sér á meðan hann lá ennþá inni.
Jeremy Renner birti þessa mynd af sér á meðan hann lá ennþá inni. Instagram

Leikarinn Jeremy Renner hefur birt myndskeið af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann sést labba á göngubretti sem ætlað er einstaklingum í endurhæfingu. Renner lenti í alvarlegu slysi á nýársdag, þar sem fleiri en 30 bein brotnuðu.

Renner er einna þekktastur fyrir að leika ofurhetjuna Hawkeye í Marvel-kvikmyndaheiminum. 

Samkvæmt lögregluskýrslum var hann að nota snjóruðningstæki til að draga bifreið frænda síns úr snjó þegar hann yfirgaf tækið án þess að nota bremsuna. Tækið rann áfram og þegar Renner reyndi að bjarga frænda sínum frá plóginum lenti hann sjálfur undir honum. 

Leikarinn hlaut meðal annars höggáverka á bringuna, þurfti að gangast undir tvær aðgerðir og dvaldi rúmar tvær vikur á spítala. Renner greindi sjálfur frá því að fleiri en 30 bein hefðu brotnað.

Um þessar mundir má sjá Renner í þáttunum Mayor of Kingstown, sem sýndir eru á Paramount+.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.