Íslensk félög með innlán upp á hundruð milljóna í SVB þegar bankinn féll
![Silicon Valley Bank var sextándi stærsti banki Bandaríkjanna.](https://www.visir.is/i/7BAA7BA8B1F5D193C09653BBCE68BEC5DC4C6EDA89C14D75C0AC0B3197BA80D5_713x0.jpg)
Nokkur íslensk fyrirtæki áttu innistæður, sem námu að lágmarki nokkur hundruðum milljóna króna, í Silicon Valley Bank (SVB) þegar bankinn varð gjaldþrota fyrr í þessum mánuði. Miklar hræringar á alþjóðlegum bankamarkaði hafa orðið til þess að íslensk fyrirtæki hafa flutt gjaldeyrisinnistæður frá erlendum bönkum yfir til íslensku bankanna á undanförnum dögum og vikum.