Sigur Max Verstappen var hans fyrsti í Ástralíu. Ekki nóg með það heldur þýðir sigurinn að Red Bull hefur aldrei byrjað tímabil betur í Formúlu 1. Verstappen byrjaði þó ekki vel og var á eftir bæði George Russell og Lewis Hamilton, báðir hjá Mercedes, í upphafi keppninnar.
Chaos. Chaos?!
— Formula 1 (@F1) April 2, 2023
An absolutely insane race restart in Australia #AusGP #F1 pic.twitter.com/hjGrjWBixS
Það breyttist fljótt en eftir að öryggisbíllinn kom tvívegis inn á brautina með skömmu millibili - fyrst eftir að Charles Leclerc klessti á Lance Stroll og svo eftir að Alex Albon klessti harkalega á - tókst Hollendingnum að sýna sínar bestu hliðar og stóð að lokum uppi sem sigurvegari. Hann var þó ekki alsæll að keppni lokinni þar sem hann taldi Hamilton hafa reynt að ýta sér til hliðar snemma í kappakstri dagsins.
„Frá mínum bæjardyrum séð er ég bara að reyna forðast snertingu. Reglurnar eru mjög skýrar hvað þetta varðar en þeim er greinilega ekki fylgt. Það er allt í lagi. Við byrjuðum illa en á fyrsta hring var ég varkár því við höfum miklu að tapa og þeir mikið að vinna,“ sagði Verstappen að keppni lokinni.
Max Verstappen takes his first win Down Under!
— Formula 1 (@F1) April 2, 2023
The Dutchman's victory marks @redbullracing's best-ever start to a season!! #AusGP #F1 pic.twitter.com/Lz9Qvv2qF0
„Þetta var hálfgerð óreiða en við stóðum allt af okkur. Bíllinn var hraður í dag og við unnum, sem skiptir öllu máli. Það er frábært að vinna hér, minn fyrsti sigur hér,“ sagði ökumaðurinn að endingu áður en hann þakkaði áhorfendum Red Bull fyrir stuðninginn í dag.
Lewis Hamilton var annar í mark í dag en á töluvert í land með að setja pressu á Verstappen í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna. Þriðji var svo Fernando Alonso á Austin Martin.
DRIVER STANDINGS
— Formula 1 (@F1) April 2, 2023
Max Verstappen extends his lead
And, Lewis Hamilton moves up the order! #AusGP #F1 pic.twitter.com/VoVTq8lGjc
TEAM STANDINGS
— Formula 1 (@F1) April 2, 2023
We now have points for every team on the board following the culmination of our third round! #AusGP #F1 pic.twitter.com/VQOmz8InGp