Lífið

Egill Fannar og Íris Freyja ást­fangin í Róm

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Egill Fannar og Íris Freyja eru nýtt par.
Egill Fannar og Íris Freyja eru nýtt par. Instagram

Athafnamaðurinn Egill Fannar Halldórsson og fegurðardrottningin Íris Freyja Salguero eru byrjuð saman.

Parið fór í rómantíska ferð saman til Rómar nú á dögunum og birti fallegar myndir af sér saman úr ferðinni. Það er greinilegt að parið deilir mikilli ástríðu fyrir ferðalögum því þau heimsóttu einnig Kaupmannahöfn fyrr í mánuðinum.

Egill Fannar er annar eigandi Gorilla vöruhúss og fyrirtækisins Wake Up Reykjavík. Hann var áður í sambandi með fegurðardrottningunni Tönju Ýr Ástþórsdóttur. Þau hættu saman árið 2021 eftir tíu ára samband.

Fyrirsætan Íris Freyja keppti í Miss Universe Iceland árið 2021. Hún lenti í 2. sæti og var valin Miss Supranational Iceland.


Tengdar fréttir

Svona var Miss Universe Iceland 2021 valin

Elísa Gróa Steinþórsdóttir var í gær krýnd Miss Universe Iceland 2021. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Vísi og á sjónvarpsstöðinni okkar Stöð 2 Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.