Lífið

Paris Hilton birtir myndir af frumburðinum

Máni Snær Þorláksson skrifar
Paris Hilton og sonur hennar, Phoenix Barron Hilton Reum.
Paris Hilton og sonur hennar, Phoenix Barron Hilton Reum. Instagram

Raunveruleikastjarnan Paris Hilton hefur nú birt fyrstu myndirnar af frumburði sínum á Instagram-síðu sinni. Hilton og eiginmaður hennar Carter Reum eignuðust drenginn í janúar á þessu ári og fékk hann nafnið Phoenix Barron Hilton Reum.

Um er að ræða fyrsta barn Hilton en fyrir á Reum dótturina Evie, sem er ellefu ára gömul, með raunveruleikastjörnunni Laura Bellizi. 

Hilton og Reum hafa verið vinir árum saman en byrjuðu saman í lok árs 2019. Þau trúlofuðust í febrúar árið 2021 og gengu svo í það heilaga í nóvember á sama ári. Brúðkaupsfögnuðurinn stóð yfir í heila þrjá daga og var engu til sparað.

Í febrúar á þessu ári prýddi Hilton forsíðu tímaritsins Glamour. Í viðtalinu við tímaritið opnaði hún sig um hluti sem hún segist ekki einu sinni hafa sagt foreldrum sínum áður. Þar sagðist hún til að mynda hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í tvígang þegar hún var fimmtán ára gömul.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×