Tvö lið í basli gerðu markalaust jafntefli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kai Havertz hélt að hann hefði komið Chelsea í forystu, en markið var dæmt af.
Kai Havertz hélt að hann hefði komið Chelsea í forystu, en markið var dæmt af. Ryan Pierse/Getty Images

Chelsea og Liverpool hafa ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til liðanna fyrir tímabilið og bæði lið þurftu á sigri að halda til að koma sér í gang er Chelsea tók á móti Liverpool á Stamford Bridge í kvöld.

Hvorugu liðinu tókst þó að koma boltanum í netið og niðurstaðan varð því markalaust jafntefli.

Þrátt fyrir það var leikurinn hin mesta skemmtun og það voru aðallega heimamenn í Chelsea sem sköpuðu sér færi. Eins og svo oft áður á þessu tímabili átti liðið þó í stökustu vandræðum með að koma boltanum yfir marklínuna. 

Kai Havertz kom þó boltanum í netið á 50. mínútu með smá heppni þegar hann skaut í Alisson í markinu, fékk boltann í sig og þaðan fór hann inn. Hann var þó einnig óheppinn því boltinn fór af höndinni á honum og í netið og því var markið dæmt af.

Lokatölur urðu því 0-0 og liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín. Liverpool er nú með 43 stig eftir 28 leiki í áttunda sæti deildarinnar, en Chelsea situr í ellefta sæti með 39 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira