Fótbolti

Jón Dagur lagði upp mark í öruggum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson.
Jón Dagur Þorsteinsson. Twitter@OHLeuven

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Leuven þegar liðið fékk Mechelen í heimsókn í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sex stig skildu liðin að í 11. og 13.sæti deildarinnar þegar kom að leik dagsins en Leuven hafði algjöra yfirburði í leiknum.

Fór að lokum svo að Leuven vann 4-1 sigur og lagði Jón Dagur upp þriðja mark heimamanna á 56.mínútu en var svo skipt af velli á 70.mínútu.

Leuven í 11.sæti með 42 stig, þremur stigum frá Anderlecht sem er í 8.sætinu sem gefur sæti í umspili um Evrópusæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×