Lífið

Swiftingar í ástar­lífinu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Swift og Alwyn árið 2019, þegar allt lék í lyndi.
Swift og Alwyn árið 2019, þegar allt lék í lyndi. Jackson Lee/GC Images/Getty

Bandaríska stórsöngkonan Taylor Swift og enski leikarinn Joe Alwyn eru hætt saman eftir rúmlega sex ára samband. 

Það er slúðurmiðillinn ET sem segir frá þessu, og greinir jafnframt frá því að sambandsslitin hafi orðið fyrir nokkrum vikum. 

Þessar fréttir kunna að vekja von í brjósti margra blóðheitra aðdáenda söngkonunnar, enda hefur hún samið marga af sínum vinsælustu smellum eftir sambandsslit, sem hafa ekki alltaf verið í góðu. Í þetta skiptið verður aðdáendum þó sennilega ekki kápan úr því klæðinu, þar sem ET greinir frá því að parið hafi haldið hvort sína leiðina sem mestu mátar og sambandsslitin verið hin vinalegustu. 

Hin 33 ára Swift er nú á tónleikaferðalagi, og spilar næst í Tampa í Flórídaríki í næstu viku. 

Skammt er síðan greint var frá því að allt væri í blóma í sambandi Swift og Alwyn, sem byrjuðu að stinga saman nefjum seint á því herrans ári 2016. Í október hafði ET til að mynda eftir heimildamanni sem stóð þeim nærri að þau „hefðu það mjög gott“ og að samband þeirra væri „ofursterkt.“

Líkt og aðdáendur Hollywood-stjarnanna vita mætavel skipast veður skjótt í lofti í heimi hinna ríku og frægu og Swift og Alwyn halda nú inn í sumarið einhleyp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.