Veður

Breyti­leg átt með rigningu og slyddu víða um land

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu eitt til átta stig á landinu í dag.
Hiti verður á bilinu eitt til átta stig á landinu í dag. Vísir/Vilhelm

Nú í morgunsárið er lægð við austurströndina sem mun þokast vestur yfir landið í dag. Áttin verður því breytileg, yfirleitt gola eða kaldi, en austan strekkingur norðantil fram eftir degi.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning eða slydda með köflum víða um land, og snjókoma til fjalla, en að það stytti smám saman upp á Norður- og Austurlandi.

Síðdegis verður áttin orðin suðlæg með skúrum sunnan- og vestantil á landinu, en þurrt og bjart um landið norðaustanvert. Hiti verður á bilinu eitt til átta stig í dag.

„Norðan gola eða kaldi á morgun og slydda eða snjókoma með köflum um landið norðanvert, en sums staðar rigning nærri sjávarmáli. Sunnantil á landinu verður hins vegar úrkomulítið. Hiti 0 til 9 stig að deginum, mildast syðst. Annað kvöld styttir síðan upp allvíða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðlæg átt 5-10 m/s og snjókoma eða rigning með köflum, en úrkomulítið sunnantil. Breytileg átt undir kvöld og stöku skúrir eða él. Hiti 1 til 8 yfir daginn, mildast syðst.

Á fimmtudag: Austlæg átt 3-10, en 8-15 suðaustantil. Rigning með köflum við suðurströndina, annars yfirleitt þurrt. Hiti 2 til 9 stig að deginum.

Á föstudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast sunnantil.

Á laugardag: Breytileg átt og bjart með köflum, en lítilsháttar væta syðst. Hlýnar heldur.

Á sunnudag: Austlæg átt og dálítil rigning með köflum, en þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti 3 til 10 stig.

Á mánudag: Suðaustlæg átt og líkur á vætu víða um land. Milt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×