Lífið

Stjörnu­lífið: Bumbu­myndir, búbblur og Bubbi í brauð­ter­tu­gerð

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta frá liðinni viku.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta frá liðinni viku. Samsett

Páskahelgin er að baki og nutu vonandi sem flestir sín vel. Fjölmargir nutu páskanna á skíðum, á meðan aðrir skelltu sér til Ísafjarðar á Aldrei fór ég suður eða höfðu það huggulegt uppi í bústað.

Leikarinn og leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson tók sig vel út í skíðabrekkunni í þessari glæsilegu múnderingu.

Sunneva Einars segir fátt toppa þá tilfinningu að vera með nýlitað hár og taka eflaust margir undir það.

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar er til í tuskið.

Hljómsveitin FM Belfast tryllti lýðinn á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fór fram á Ísafirði um helgina. Af samfélagsmiðlum að dæma var rífandi stemning. Í hópi þeirra sem komu einnig fram voru Una Torfa, Ragga Gísla, hljómsveitirnar Kvikindi og russian.girls, Árný Margrét og Bríet. Bríet hélt einnig tónleika á Vagninum á Flateyri þar sem fullt var út úr dyrum.

Katrín Edda birtir fyrstu myndina eingöngu af sjálfri sér frá því dóttir hennar fæddist. Tímamót!

„Aldamótahrútarnir“ keyrðu í 9 klukkutíma alla leið í Neskaupstað þar sem þeir trylltu lýðinn á páskaballi.

LXS-skvísurnar Birgitta Líf og Hildur Sif sötruðu búbblur.

Áslaug Arna fann heimsins besta ramen í Tóýkó.

Dansarinn Ástrós Traustadóttir birti fallegar bumbumyndir. „Ég ætlaði svoleiðis að pósta þeim öllum síðasta mánuðinn af meðgöngunni en skvísan ákvað bara mæta 3 vikum fyrir tímann þannig hér er nokkrar úr þessari dýrmætu töku,“ skrifar hún.

Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör tók sig vel út í smekkbuxum.

Samfélagsmiðlastjarnan og fatahönnuðurinn Camilla Rut hélt upp á afmæli frumburðarins.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir hlóð batteríin uppi í sumarbústað um páskana.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson skellti sér í Hlíðarfjall með fjölskylduna.

Tískubloggarinn Pattra naut lífsins með fjölskyldu og vinum á Akureyri yfir páskahelgina.

Lögfræðineminn og samfélagsmiðlastjarnan Helga Margrét spókar sig á Spáni.

Tónlistarkonan Hildur spókar sig í Vínarborg.

Helgi Ómars og Pétur Sveinsson eru mættir til þess að stela stelpunni þinni - og fara með hana í dögurð.

Samfélagsmiðlastjarnan Móeiður naut páskanna með börnunum sínum.

Listamaðurinn Snorri Ásmundsson og lífskúnstnerinn og rithöfundurinn Ármann Reynisson fögnuðu páskunum saman við hátíðlegt kvöldverðarboð.

Fagurkerarnir Gummi Kíró og Lína Birgitta göldruðu fram þessa dýrindis páskaköku.

Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir naut lífsins á Barcelona.

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens kom mörgum á óvart með þessari glæsilegu brauðtertu sem hann galdraði fram um páskana.

Ofurskvísunar Tara Sif og María Rós skelltu sér í alvöru 80's partý hjá Ásgeiri Kolbeins og Heru Gísladóttur.

Fegurðardrottningin Fanney Ingvars naut páskanna í Stykkishólmi.

Tónlistarmaðurinn Aron Can og kærasta hans Erna María Björnsdóttir urðu foreldrar.

Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir er að vinna sig hratt og örugglega niður „bucketlistann“ þessa dagana.

„Lagið sem byrjaði þetta allt saman,“ skrifar tónlistarkonan Laufey undir upptöku frá tónleikum hennar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem sýndir voru á RÚV nú um páskana.

Ljósmyndarinn Ína María nýtur lífsins á Grikklandi þar sem hún er búsett.

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir birti skemmtilegar myndir frá síðustu dögum.


Tengdar fréttir

Stjörnu­lífið: Verð­laun, skíði og lúxus

Lóan er komin að kveða burt snjóinn. Í síðustu viku nýttu því margir tækifærið og skelltu sér á skíði áður en snjórinn kveður endanlega. Þá er verðlaunavertíðin ennþá í fullum gangi og voru Íslensku tónlistarverðlaunin veitt nú í vikunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.