Viðskipti erlent

Stofnandi Thera­nos kemst ekki hjá fangelsis­vist

Kjartan Kjartansson skrifar
Elizabeth Holmes er tveggja barna móðir en hún eignaðist þau bæði eftir að hún var ákærð fyrir stófelld brot í tengslum við Theranos.
Elizabeth Holmes er tveggja barna móðir en hún eignaðist þau bæði eftir að hún var ákærð fyrir stófelld brot í tengslum við Theranos. AP/Jeff Chiu

Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik.

Holmes var dæmd í meira en ellefu ára fangelsi fyrir að svíkja fjárfesta í Theranos í fyrra. Fall Holmes var hátt en henni hafði verið hampað sem frumkvöðli og sjálfsköpuðum milljarðamæringi. Hún hélt því fram að Theranos hefði þróað byltingarkennda tækni við blóðprufur sem krefðist aðeins eins blóðdropa úr sjúklingum. Lítill innistæða reyndist fyrir þeim fullyrðingum.

Dómarinn í málinu taldi að Holmes hefði ekki lagt fram sannfærandi gögn um að hún ætti að fá að ganga laus á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sínum. Niðurstaðan þýðir að Holmes, sem er 39 ára gömul, þarf að gefa sig fram til afplánunar 27. apríl.

AP-fréttastofan segir að Holmes geti kært úrskurð umdæmisdómarans. Ramesh „Sunny“ Balwani, næstráðandi Holmes hjá Theranos, vann slíka áfrýjun á dögunum en áfrýjunardómstóll sneri þeim úrskurði við. Réttað var yfir Holmes og Balwani hvoru í sínu lagi. Balwani hlaut tæplega þrettán ára fangelsisdóm fyrir sinn þátt í blekkingum Theranos.

Mál Holmes og Theranos vakti mikla athygli en um það hafa meðal annars verið gerðar heimildarmyndir og nú síðast leiknir þættir.


Tengdar fréttir

Holmes dæmd í ellefu ára fangelsi

Elizabeth Holmes, stofnandi Theranos, hefur verið dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Holmes var sakfelld í upphafi árs en refsingin ekki ákveðin fyrr en nú.

Elizabeth Holmes fundin sek um fjár­svik

Dómstóll í Bandaríkjunum sakfelldi í gær Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos, af ákæru um að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Réttarhöld í máli Holmes hafa staðið yfir í Kaliforníu síðustu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×