Venju samkvæmt spáir íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst í dag, þann 25. apríl, með þremur leikjum. Fyrstu umferðinni lýkur svo 26. apríl með tveimur leikjum.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Stjarnan endi í 1. sæti Bestu deildar kvenna í sumar og verði Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sjö ár.
Stjarnan
- Ár í deildinni: 32 tímabil í röð í efstu deild (1992-)
- Besti árangur: Fjórum sinnum Íslandsmeistari (síðast 2016)
- Best í bikar: Þrisvar sinnum bikarmeistari (síðast 2015)
- Sæti í fyrra: 2.
- Þjálfari: Kristján Guðmundsson (5. tímabil)
- Markahæst í fyrra: Jasmín Erla Ingadóttir, 11 mörk
Síðasta tímabil var frábært í Garðabænum, það besta frá Íslandsmeistaraárinu 2016. Stjörnukonur voru í baráttu við Blika um 2. sætið, unnu hana á endanum og tryggðu sér Evrópusæti.
Stjarnan hefur bætt sig á hverju tímabili eftir að Kristján Guðmundsson tók við liðinu fyrir tímabilið 2019. Og ef Garðbæingar bæta stöðu sína í Bestu deildinni frá síðasta tímabili þýðir það að þeir standa uppi sem Íslandsmeistarar í haust. Það hlýtur allavega að vera stefnan í Garðabænum.

Stjarnan missti vissulega Katrínu Ásbjörnsdóttur sem skoraði níu mörk á síðasta tímabili en liðið virðist samt vera sterkara en í fyrra. Munar þar mestu um heimkomu Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur. Hún er komin aftur í Bestu deildina eftir tíu farsæl ár í atvinnumennsku.
Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikil búbót Gunnhildur er fyrir Stjörnuna enda hundrað landsleikja kona og einn öflugasti leikmaður Íslands síðustu fimmtán árin eða svo. Mikil kraftur og meðbyr ætti að fylgja hinni mjög svo drífandi Gunnhildi og vonandi eykur hún áhuga Garðbæinga á liðinu sínu.
Eftir nokkur uppbyggingarár er Stjarnan aftur komin í fremstu röð og Garðbæingar mæta stórhuga og sterkir til leiks í sumar. Gengið á undirbúningstímabilinu lofar allavega góðu en Stjarnan vann bæði Lengjubikarinn og Meistarakeppnina, þótt þær hafi vissulega þurft vítaspyrnukeppnir til.
Verður 2023 ár Stjörnukvenna? Ekki veðja gegn því.
Liðið og lykilmenn
Stjarnan teflir fram svipuðu liði og vann til silfurverðlauna á síðasta tímabili. Garðbæingar munu sakna Katrínar og markanna níu sem hún skoraði í fyrra og þá var Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir í nokkuð stóru hlutverki.
Snædís María Jörundsdóttir, ein af stjörnum U-19 ára landsliðsins, er komin aftur til Stjörnunnar, reynslunni ríkari eftir dvöl hjá Keflavík og hún verður væntanlega í byrjunarliðinu. Þá er hin nýsjálenska Betsy Hassett komin aftur í Garðabæinn og hún eykur breiddina verulega hjá Stjörnunni.

Miðjan var sterk hjá Stjörnunni og ekki veiktist hún með tilkomu Gunnhildar Yrsu og Andreu Mistar Pálsdóttur. Þær tvær og Heiða Ragney Viðarsdóttir mynda gríðarlega öfluga Stjörnumiðju sem ætti að standa öllum öðrum miðjum deildarinnar framar þegar kemur að krafti og hlaupagetu. Þeim til halds og trausts er svo Grindvíkingurinn Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.
Komnar:
- Betsy Hassett frá Wellington Phoenix
- Eyrún Vala Harðardóttir frá Augnabliki
- Erin McLeod frá Orlando Pride
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir frá Orlando Pride
- Andrea Mist Pálsdóttir frá Þór/KA
Farnar:
- Birta Guðlaugsdóttir í Val
- Chanté Sandiford í Grindavík
- Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir í FH
- Katrín Ásbjörnsdóttir í Breiðablik
Í framlínunni mun mikið mæða á Jasmín Erlu Ingadóttur, markahæsta leikmanni Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Annar leikmaður sem blómstraði á síðasta tímabili, Gyða Kristín Gunnarsdóttir, þarf að taka annað skref fram á við svo Stjarnan verði í titilbaráttu. Nýsjálendingurinn Betsy Hassett verður svo líka væntanlega í stóru hlutverki.
Vörn Stjörnunnar er svipuð og á síðasta tímabili en stærsta ákvörðun Kristjáns snýr að markinu. Treystir hann á kanadíska Ólympíumeistarann Erin McLeod sem fylgdi Gunnhildi Yrsu í Garðabæinn eða Auði Sveinbjörnsdóttur Scheving sem hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið undanfarin misseri. Erin byrjaði úrslitaleik Lengjubikarsins og Meistaraleikinn og verður væntanlega í markinu í byrjun tímabils.
Lykilmenn Stjörnunnar
- Anna María Baldursdóttir, 28 ára varnarmaður
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, 34 ára miðjumaður
- Jasmín Erla Ingadóttir, 24 ára sóknarmaður
Fylgist með
Anna María Baldursdóttir verður alltaf fyrsti kostur í miðja vörn Stjörnunnar. Og til að byrja með verður Eyrún Embla Hjartardóttir væntanlega við hlið hennar. Eyrún spilaði talsvert í fyrra, ellefu leiki af átján, og verður í enn stærra hlutverki í sumar. Gríðarlega efnilegur varnarmaður.

Í besta/versta falli
Í versta falli stendur Stjarnan ekki undir væntingum og ef allt fer á allra, allra versta veg gæti liðið farið niður í 3. sæti. En í besta falli verða Stjörnukonur Íslandsmeistarar í fimmta sinn í sögu félagsins og það er allt til alls í Garðabænum til að fara alla leið.