Veður

Skýjað og ein­hver rigning sunnan og vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig í dag.
Hiti verður á bilinu sjö til fjórtán stig í dag. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan- og suðaustanátt í dag þar sem víða verður fimm til þrettán metrar á sekúndu. Skýjað og rigning eða súld með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu og einnig líkur á þokusúld við ströndina.

Á vef Veðurstofunnar segir að bjart verði að mestu á Norður- og Austurlandi. Búist er við hita á bilinu sjö til fjórtán stig, hlýjast norðaustantil.

„Það breytist ekki mikið á morgun. Enn væta fyrir sunnan og vestan en þurrt og bjart með köflum norðaustantil. Eftir hádegi eru samt líkur á stöku skúrum fyrir norðan. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag verður bjartviðri víða um land, en skýjað með dálítilli vætu vestast. Áfram milt í veðri.“

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðlæg átt 5-10 m/s en heldur hvassara suðvestantil síðdegis. Dálítil væta á köflum, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Suðvestan 3-10 og víða þurrt og bjart með köflum, en skýjað og smáskúrir vestast á landinu. Hiti víða 7 til 12 stig.

Á föstudag: Norðan 5-10 og dálítil slydda eða snjókoma um tíma á norðurhelmingi landsins, hiti í kringum frostmark. Þurrt sunnanlands og hiti 5 til 10 stig, en kólnar þar um kvöldið.

Á laugardag og sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og bjartviðri norðantil en annars víða skýjað og líkur á smá vætu vestanlands. Hiti yfir daginn frá frostmarki norðaustanlands, upp í 7 stig á Suðvesturlandi.

Á mánudag: Útlit fyrir hæga breytilega átt. Skýjað með köflum og smáskúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×