Innlent

Bein út­sending: Al­þjóða­sam­vinna á kross­götum - Hvert stefnir Ís­land?

Bjarki Sigurðsson skrifar
Veröld - Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er staðsett við Brynjólfsgötu í Reykjavík.
Veröld - Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er staðsett við Brynjólfsgötu í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Veröld - húsi Vigdísar miðvikudaginn 19. apríl frá klukkan 10:00 – 17:00. Hægt verður að fylgjast með í beinu streymi hér fyrir neðan.

Meðal þess sem rætt verður er samvinna Norðurlandanna í breyttu öryggisumhverfi, hlutverk Evrópuráðsins þegar kemur að því að standa vörð um mannréttindi, áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og áhrif stríðsins í Úkraínu á svæðið, leiðina að bættu alþjóðakerfi þegar kemur að vernd fólks á flótta, svo eitthvað sé nefnt.

Hér fyrir neðan má lesa dagskrá ráðstefnunnar.

  • Ráðstefnustjóri Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
  • 10:00 - 10:10 Setning ráðstefnu Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
  • 10:10 - 10:20 Opnunarávarp Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra
  • 10:20 – 11:15 Stríð í Evrópu: Norræn samvinna í breyttu öryggisumhverfi
  • Jakob Hallgren, forstöðumaður sænsku alþjóðamálastofnunarinnar (UI), Kristin Haugevik, sérfræðingur hjá norsku alþjóðamálastofnuninni (NUPI), Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands (IIA), Samu Paukkunen, aðstoðarforstöðumaður finnsku alþjóðamálastofnunarinnar (FIIA) og Ulrik Pram Gad, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS)
  • Málstofustjóri Auðunn Atlason, alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins
  • 11:15 – 11:30 Kaffihlé
  • 11:30 – 12:30 Norðurslóðir á stríðstímum: Öryggi, umhverfi og samstarf
  • Erindi Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands
  • Pallborðsumræður Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður og fyrrverandi alþingismaður, Áslaug Ásgeirsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Bates College í Maine og Fulbright Arctic-NSF fræðimaður við Háskóla Íslands 2022-23, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fyrrum formaður sérfræðihóps Norðurskautsráðsins um sót og metan og Þórunn Wolfram PhD, framkvæmdastjóri Loftslagsráðs
  • Málstofustjóri Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun
  • 12:30 – 13:00 Léttur hádegisverður
  • 13:00 – 13:50 Hefur alþjóðasamfélagið brugðist flóttafólki? Leiðin að bættu alþjóðakerfi
  • Erindi Hugo Brady, sérfræðingur hjá International Center for Migration Policy Development (ICMPD)
  • Pallborðsumræður Claudia Ashanie Wilson, lögmaður og eigandi Claudia & Partners Legal Services, Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks, Jasmina Vajzovic Crnac, stjórnmálafræðingur og Nína Helgadóttir, teymisstjóri á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða kross Íslands
  • Málstofustjóri Svanhildur Þorvaldsdóttir, lektor í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands
  • 13:50-14:00 Kaffihlé
  • 14:00 –14:50 Mannréttindi, lýðræði og hlutverk Evrópuráðsins
  • Erindi Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, yfirmaður samvinnuverkefna hjá Evrópuráðinu
  • Pallborðsumræður Björg Thorarensen, hæstaréttardómari, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Þórlindur Kjartansson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra
  • Málstofustjóri Ingólfur Bjarni Sigfússon, ritstjóri Kveiks, RÚV
  • 14:50 – 15:50 Hvert stefnum við? Fulltrúar stjórnmálaflokka ræða utanríkisstefnu Íslands
  • Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar, Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins
  • Málstofustjóri Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins
  • 15:50 – 16:00 Lokaorð Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar
  • 16:00 – 17:00 Móttaka og uppistand með Villa Neto



Fleiri fréttir

Sjá meira


×