Innlent

Sumarið ekki alveg komið enn

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Nokkur kuldi er í kortunum víðast hvar á landinu. Hiti á og undir frostmarki og gera má ráð fyrir einhverri úrkomu. Veðurfræðingur segir ekkert að óttast.

„Er þetta ekki bara svona frekar venjulegur hluti af vorinu? Það kemur svona norðanátt og kólnar, það kemur svona hálfgert kaldara veður. Við erum búin að vera í hlýindum undanfarið og núna fáum við svona hina hliðina á vorinu næstu daga, sérstaklega á Norðurlandi. Það verður örugglega heldur skaplegra sunnanlands varðandi hitann,“ segir Birgir Örn Höskuldsson veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

Svona lítur spáin út ef þriðjudagurinn 25. apríl er skoðaður.Veðurstofan

Hann segir að gera megi ráð fyrir dálítilli snjókomu á Norðurlandi á morgun, í fyrramálið, en úrkoma virðist þó ekki áberandi á spám: „Það gætu alveg fallið skúrir eða él víða um landið en þetta verður aðallega frekar rólegt veður og svalt. Þetta virðist ætla að vera frekar rólegt en talsvert kaldara en hefur verið, það er búið að vera óvenju hlýtt undanfarið.“

Allt á huldu

Birgir Örn segir erfitt að segja til um hve lengi kalt verður í veðri en vonar að sumarið komi fyrr en síðar.

„Þetta er eiginlega lykilhluti af vorinu; að fá smá hret. Ég held að ég geti sagt að það hefur sýnt sig að hvernig hitinn er núna segir okkur afskaplega lítið um hvernig hitinn verður í sumar. Síðustu þrjár vikur hafa verið mjög hlýjar eftir að kuldahrinunni í mars lauk, en núna fáum við aðeins kaldara loft. Síðan í rauninni vitum við náttúrulega ekkert hvað tekur við. Maður getur treyst spánni nokkra daga fram í tímann en eftir það er svolítið allt á huldu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×