Enski boltinn

Mahrez skaut Manchester City í úr­slita­leikinn

Aron Guðmundsson skrifar
Mahrez fagnar einu marki sínu í dag
Mahrez fagnar einu marki sínu í dag Visir/Getty

Manchester City er komið áfram í úrslitaleik enska bikarsins eftir öruggan 3-0 sigur á Sheffield United í undanúrslitum keppninnar í dag. 

Leikið var á Wembley, þjóðarleikvangi Englendinga en á meðan að Manchester City er í toppbaráttu í ensku úrvalsdeildinni hefur Sheffield United verið að gera góða hluti í ensku B-deildinni á tímabilinu og er þar í toppbaráttu. 

Fyrsta markið í undanúrslitaleik dagsins kom á 43. mínútu, það skoraði Riyad Mahrez úr vítaspyrnu fyrir Manchester City. 

Mahrez var aftur á ferðinni á 61.mínútu þegar að hann tvöfaldaði forystu Manchester City og aðeins fimm mínútum síðar fullkomnaði hann þrennu sína og innsiglaði um leið sæti Manchester City í úrslitaleik enska bikarsins. 

Á morgun kemur það síðan í ljós hvort það verða erkifjendur Manchester City í Manchester United sem mæta þeim í úrslitaleiknum eða Brighton en liðin mætast á Wembley klukkan 15:30. 

Stöð 2 Sport er heimili enska bikarsins og verður undanúrslitaleikur Manchester United og Brighton í beinni útsendingu klukkan 15:30 á morgun




Fleiri fréttir

Sjá meira
×