Bakkafrost, sem er langstærsta fyrirtæki Færeyja, tilkynnti í fyrrasumar að nýstofnað dótturfélag, FarCargo, hefði fest kaup á Boeing 757-200, 47 metra langri þotu með 7.000 kílómetra flugdrægi sem gæti borið allt að 35 tonna farm. Þotunni væri einkum ætlað að fljúga milli Vogaflugvallar í Færeyjum og New York-borgar.
Fram kom að FarCargo hefði verið í samstarfi við sænska fyrirtækið West Atlantic til að sjá um öll flugleyfi. FarCargo væri síðan ætlað að taka við flugrekstrinum eftir nokkur ár. Í fyrstu yrðu tíu flugliðar og aðrir starfsmenn fastráðnir hjá félaginu.

Í frétt færeyska blaðsins Sosialurin fyrir helgi kom fram að samið hefði verið við bandaríska fyrirtækið AerSale um kaup á Boeing-þotunni, sem er af árgerð 2001. Miðað væri við að hún yrði afhent um mánaðamótin júní-júlí. Hún yrði meðal annars útbúin með RNP-flugleiðsögukerfi, sem gerði henni kleift að gera aðflug og lenda í dimmri þoku, eins og algeng er í Vogum.
„Þetta er nýr kafli í færeyskri viðskiptasögu,“ sagði Regin Jacobsen, forstjóri Bakkafrosts, í fréttatilkynningu félagsins í fyrra.

„Stefnt er að því að afhenda ferskan hágæða lax bæði í Bandaríkjunum, Ísrael og öðrum fjarlægum mörkuðum aðeins degi eftir að fiskurinn syndir í færeyskum fjörðum.
Við teljum að þetta muni styrkja samkeppnishæfni okkar verulega. Viðskiptavinir, bæði í Ísrael og á bandaríska sushimarkaðnum, krefjast ferskra vara og með þessari miklu styttri leið munum við útvega viðskiptavinum okkar ferskustu vöruna á markaðnum,“ sagði Regin.

Flugvélin verður þó ekki eingöngu nýtt til laxflutninga. FarCargo hyggst bjóða bæði færeyskum og alþjóðlegum fyrirtækjum að kaupa farmrými. Þannig muni til dæmis innflutningsfyrirtæki geta nýtt flugvélina til að fljúga með vörur erlendis frá til Færeyja.
Í þessari frétt lýsti talsmaður laxeldisfyrirtækis á Austfjörðum yfir áhuga á fraktflugi með lax frá Egilsstöðum:
Forseti Íslands kynnti sér starfsemi Bakkafrosts í heimsókn til Færeyja fyrir sex árum:
Boeing 757-þotur hafa einnig verið burðarásinn í flugi Icelandair Cargo með ferskan íslenskan fisk á erlenda markaði, sem fjallað var um í þættinum Um land allt árið 2014: