Innlent

Bein út­sending: Árs­upp­gjör Reykja­víkur­borgar 2022

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, ræðir ársuppgjör borgarinnar á blaðamannafundi dagsins sem hefst klukkan 14:00. 
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, ræðir ársuppgjör borgarinnar á blaðamannafundi dagsins sem hefst klukkan 14:00.  Vísir/Vilhelm

Ársuppgjör Reykjavíkurborgar vegna ársins 2022 verður kynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 14:00.

Ársuppgjörið verður auk þess lagt fram í borgarráði í dag, fimmtudaginn 27. apríl.

Blaðamannafundurinn verður haldinn í Tjarnarbúð á þriðju hæð í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri verður meðal þeirra sem munu taka til máls á fundinum ásamt Halldóru Káradóttur, sviðsstjóra Fjármála-og áhættustýringarsviðs borgarinnar.

Upptöku af fundinum má finna í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×