Lífið

Segir mikil­vægt að halda tengingunni við Ís­land

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sara Snædís Ólafsdóttir
Sara Snædís Ólafsdóttir Christian Fang

Sara Snædís Ólafsdóttir stofnandi Withsara, hélt opinn viðburð í barre, pilates og jóga á dögunum undir heitinu Withsara wellness þar sem um hundrað konur komu saman og tóku vel á því.

„Við byrjuðum á klukkutíma barre tíma þar sem allir fengu að svitna smá og seinni tíminn fór svo í jóga og slökun,“ segir Sara ánægð með útkomuna og bætir við að konurnar hafi farið vel senaðar heim um kvöldið.

„Þetta er i annað skipti sem ég held viðburð hérna heima og finnst mér mikilvægt að koma til að halda tengingunni við Ísland og hitta konurnar mínar,“ segir Sara sem annars þjálfar konur á netinu frá Stokkhólmi, þar sem hún býr með fjölskyldu sinni.

Viðburðurinn fór fram í ráðstefnusal The Reykjavík Edition við Reykjavíkurhöfn þar sem um fimmtíu konur mættu tvö kvöld í röð.

Viðburðinum var hinn glæsilegasti líkt á sjá má á meðfylgjandi myndum.

Notalegt að æfa í þessum sal.Soffía Rún
Tíminn byrjaði á pilates og barre kennslu.Soffía Rún
Seinni klukkutíminn fór í jóga og slökun.Soffía Rún
Góð slökun í jógastöðunni barnið.Soffía Rún
Tekið vel á því í erfiðum stöðum.Soffía Rún
Jógastaðan tréð.Soffía Rún
Carmen Maja, Dóra Sif, Anna Þrúður, Erna Guðrún, Katrín og Ragnheiður.Soffa Rún
Linda Benediktsdóttir matarbloggari. Soffía Rún
Andrea Magnúsdóttir eigandi verslunarinnar Andrea og áhrifavaldurinn Elísabet Gunnarsdóttir.Soffía Rún

Myndir viðburðinum í september í fyrra:


Tengdar fréttir

Komdu orkunni þinni í jafnvægi

„Hugmyndafræði Ayuraveda um að borða meðvitað er sú aðferð sem allir geta fylgt til þess að bæta matarvenjur sínar, lifað heilbrigðari lífi sem styður við meltingarkerfið og orkuna,“ segir þjálfarinn Sara Snædís Ólafsdóttir.

Lykilatriði að velja hreyfingu sem vekur ánægju

Sara Snædís Ólafsdóttir þjálfari er með margar mæður og barnshafandi konur í fjarþjálfun hjá sér. Hún skrifaði nýjan pistil um hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu með góðum ráðum en hún er sjálf tveggja barna móðir. Við gefum henni orðið.

Hvernig getur þú bætt mataræðið þitt?

„Í gegnum tíðina hafa konur deilt með mér að þær langi til þess að bæta mataræðið sitt. Þær hafa spurt mig hvernig þær geti bætt það án þess að fara á strangt mataræði,“ segir þjálfarinn Sara Snædís Ólafsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.