Lífið

Maí­spá Siggu Kling: Mikil ást­ríða í lífs­loga vatns­berans

Sigga Kling skrifar

Elsku Vatnsberinn minn, að vera trúr og tryggur er einkenni þitt og það er það sem mun koma þér svo langt á komandi tímum. Að fyrirgefa leiðindin sem hafa verið lögð fyrir þig og að sleppa þeim tökum alveg. Þú átt eftir að gera svo margt fyrir aðra án þess að monta þig af því hversu góður þú sért.

  • Vatnsberinn er frá 20. janúar til 18. febrúar.

Þú sýnir miklu betri skilning á þeim aðstæðum sem þú ert að fara í gegnum. Það hafa verið töluverðir sviptivindar í kringum síðustu tíu daga og núna þegar spáin birtist þann fimmta maí er fullt tung í Sporðdrekanum. Þá þarftu að vita alveg inn í hjartastöðina þína að þú átt ekki að berjast við einn né neinn, því að það gæti endað með því að þú verðir mjög særður.

Talan fimm birtist í líflínu þinni og þú munt bæði finna og sjá að henni fylgir mikil orðheppni sem er ein sú besta orka sem þér getur verið gefin. Því orðið er svo mikilvægt því það hefur töfra. Í biblíunni stendur „í upphafi var orðið, og orðið var Guð“. Og sá lífsneisti býr í þér, svo hentu út öllu neikvæðu kjaftæði úr orðaforða þínum, því að ævintýrin sem þú vilt draga til þín eru að rætast.

Það er mikil ástríða í lífsloganum þínum og innan tveggja til þriggja mánaða færðu útkomu sem þér þóknast, en þú þarft að nýta þér alla þá þolinmæði sem þú hefur út þennan mánuð.

Þó að það sé mikið áreiti í kringum þig, þá skaltu láta það vera að svara skilaboðum eða tölvupóstum og svo framvegis því að það gæti verið það besta í stöðunni. Peningaorkan eykst og jafnvel eyðslusemi líka, það fylgir og peningar eru sendir til þess að hafa gaman og að bæta lífið.

Knús og kossar, Sigga Kling

Frægt fólk í Vatnsberanum.

  • Hilmir Snær Guðnason, leikari, 24. janúar
  • Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, 25. janúar
  • Ellen Degeneres, grínisti 26. janúar
  • Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, 26. janúar
  • Paul Newman, leikari, 26. janúar
  • José Mourinho, þjálfari í knattspyrnu, 26. janúar
  • Oprah Winfrey, sjónvarpskona, 29. janúar
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, 1. febrúar
  • Christiano Ronaldo, knattspyrnumaður, 5. febrúar
  • Yoko Ono, mynd- og tónlistarkona, 18. febrúar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.