Lífið

Maí­spá Siggu Kling: Tími fyrir tví­burann að taka á­hættu

Sigga Kling skrifar

Elsku Tvíburinn minn, þú ert að fara inn í tímabil þar sem lukkan lofar þig. Þú munt sjá að þú hefur afl til þess að breyta nánast öllu í gull. Júpíter, hin gjafmilda pláneta, er í níunda húsi og eflir jákvæðar tilfinningar, skerpir á því sem þú ert að gera og lætur þig dansa í tunglsljósinu. Þú kemur sjálfum þér á óvart og dagurinn þinn í þessum mánuði er 13. maí en þá er eitthvað sem þú þarft að horfast í augu við eða jafnvel kemur þér á óvart, en útkoman er margfaldur plús.

  • Tvíburi er frá 21. maí til 21. júní.

Satúrnus er nálægt tungli þennan stórbrotna dag en þú skautar fram hjá hans duttlungum. Þú átt eftir að finna mikla spennu af því að verkefnin verða hröð og mörg. Þú finnur líka fyrir því eins og þú hafir fiðrildi í maganum og ástarorkan er í hverju horni.

Þú eflir þá ást sem þú hefur og svo er líka sterk tengsl við það að innan við 90 daga ertu kominn með maka þinn, ef þú ert laus og liðugur. Taktu áhættu, þetta er þinn tími, svo trúðu og treystu því að þú hafir lykilinn, sem þú hefur. Láttu þá manneskju vita sem þú vilt tengjast við, hvort sem það er í ást eða öðrum tilgangi, að þú hafir tilfinningar eða hafir áhuga á að kynnast viðkomandi.

Vegna þess að þú ert með skærustu tenginguna af öllum stjörnumerkjunum á þessu tímabili að lífið leiki við þig, skaltu hafa það í huga að hvað svo sem þú tekur þér fyrir hendur, að það að hika er það sama og að tapa. Og að lifa er að þora og það er alveg víst að þú færð það hlutverk sem þú sækir um. Hræðsla drepur hugann og aflið svo hún er ekki velkomin í þitt partý.

Þó að þú syrgir einhverja manneskju sem annaðhvort fór til sumarlandsins eða skildi viði þig, þá skaltu muna bara góður minningarnar í kringum það allt saman, því að þitt er lífið og þú verður að lifa því.

Knús og kossar, Sigga Kling

  • Sir Ian Mckellen, leikari, 25. maí
  • Anita Briem, leikkona, 29. maí
  • Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, 29. maí
  • Marilyn Monroe, leikkona, 1. júní
  • Donald Trump, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 14. júní
  • Xi Jinping, stjórnmálamaður, 15. júní
  • Boris Johnson, stjórnmálamaður, 19. júní
  • Dagur B Eggertsson, borgarstjóri, 19 júní






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.