Arsenal gerði góða ferð norður og hélt titilbaráttunni á lífi

Gabriel Martinelli fagnar seinna marki Arsenal í dag.
Gabriel Martinelli fagnar seinna marki Arsenal í dag. Vísir/Getty

Arsenal gerði góða ferð norður til Newcastle í dag og vann 2-0 útisigur í ensku úrvaldsdeildinni. Arsenal heldur því lífi í titilbaráttunni en þeir eru nú einu stigi á eftir Manchester City.

Þeir voru margir sem biðu spenntir eftir leik Arsenal og Newcastle í dag enda mikilvægur í toppbaráttunni sem og í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Martin Ödegaard kom gestunum úr Arsenal yfir á 14. mínútu leiksins þegar hann skoraði eftir sendingu frá Jorginho. Staðan í hálfleik 1-0 og allt galopið.

Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega. Alexander Isak og Gabriel Martinelli áttu báðir skot í tréverkið áður en Arsenal tvöfaldaði forystu sína þegar Fabian Schär skoraði sjálfsmark. Gabriel Martinelli átti þá sendingu í skyndisókn sem stefndi beint á Martin Ödegaard, Schär reyndi hvað hann gat til að verjast en sendi boltann í eigið mark.

Eftir þetta voru úrslitin svo gott sem ráðin. Arsenal sigldi sigrinum örugglega í höfn en þeir minnka forystu Manchester City í eitt stig með sigrinum. Manchester City á einn leik til góða.

Newcastle situr í þriðja sæti deildarinnar með 65 stig, Manchester United er með 63 stig í fjórða sæti en hefur leikið einum leik minna en Newcastle. Liverpool er síðan í fimmta sæti með 62 stig en hefur leikið tveimur leikjum meira en United og einum meira en Newcastle. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira