Sport

Dag­skráin í dag: Bestu deildirnar, ítalski boltinn og undan­úr­slit í Olís-deild karla

Smári Jökull Jónsson skrifar
ÍBV og FH mætast í öðrum leik undanúrslita Olís-deildarinnar í dag.
ÍBV og FH mætast í öðrum leik undanúrslita Olís-deildarinnar í dag. Vísir/Hulda Margrét

Það er heill hellingur af beinum útsendingum á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag. Þar bera hæst leikir í Bestu deildum karla og kvenna sem og leikur ÍBV og FH í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Stöð 2 Sport

Fyrri útsending dagsins frá Vestmannaeyjum er frá leik ÍBV og Þór/KA í Bestu deild kvenna. Útsendingin hefst klukkan 13:50. Klukkan 19:00 verður síðan sýnt beint frá Reykjavíkurslag Vals og KR í Bestu deild karla.

Strax að þeim leik loknum verða Bestu tilþrifin síðan í beinni útsendingu og hefst þátturinn klukkan 21:15.

Stöð 2 Sport 2

Dagurinn er tekinn snemma með leik Atalanta og Juventus í Serie A en útsending frá leiknum hefst 10:20. Ítalíumeistarar Napoli taka svo á móti Fiorentina á heimavelli sínum og verður eflaust mikið um dýrðir í þeim leik en hann er í beinni útsendingu frá 15:50.

Við færum okkur svo yfir í NBA-deildinni í kvöld þegar sýnt verður beint frá fjórða leik Boston og Philadelphia 76´ers klukkan 19:30.

Stöð 2 Sport 3

Leikur Real Madrid og Unicaja í spænska körfuboltanum verður sýnt beint frá klukkan 10:20. Klukkan 16:20 er svo komið að leik Cazoo Baskonia og Gran Canaria í sömu deild.

Leikur Lecce og Hellas Verona verður sýndur beint klukkan 18:35.

Stöð 2 Sport 4

Síðasti dagur Hanwha International Crown í golfi verður í beinni klukkan 22:00 en þar er keppt í liðakeppni.

Stöð 2 Sport 5

Annar leikur ÍBV og FH í undanúrslitum Olís-deildar karla verður í beinni útsendingu og hefst hún klukkan 16:30. ÍBV vann sigur í Kaplakrika í fyrsta leik liðanna og því pressa á FH að sækja sigur til Eyja í dag.

Seinni bylgjan verður síðan í beinni frá Vestmannaeyjum klukkan 18:40.

Besta deildin

Leikur HK og KA verður sýndur beint klukkan 16:50 og þar verður gaman að sjá hvort nýliðar HK ná að halda áfram góðu gengi sínu í upphafi móts.

Besta deildin 2

Tindastóll og FH mætast á Sauðárkróki í Bestu deild kvenna og hefst útsending klukkan 15:50.

Stöð 2 Esport

Sandkassinn verður í beinni útsendingu frá klukkan 21:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×