Lífið

Diljá býr í Hús­dýra­garðinum

Oddur Ævar Gunnarsson og Sigurður Orri Kristjánsson skrifa
Diljá var ekkert sérlega ánægð að þurfa að dúsa lengi í faðmi fréttamanns Stöðvar 2 og var fegin að komast aftur í fang Unnar. 
Diljá var ekkert sérlega ánægð að þurfa að dúsa lengi í faðmi fréttamanns Stöðvar 2 og var fegin að komast aftur í fang Unnar.  Stöð 2

Fyrstu lömb sumarsins í Húsdýragarðinum komu í heiminn í dag og eitt þeirra hefur nú þegar hlotið viðeigandi nafn í ljósi tímasetningarinnar. Hún ber að sjálfsögðu nafnið Diljá í höfuðið á Eurovisionfara Íslands.

„Það hefur svo sem alveg skeð að við höfum fengið Eurovision lömb og Eurovision dýr. Hún er ekki eina Eurovision stjarnan okkar,“ segir Unnur Sigurþórsdóttir, deildarstjóri fræðslu í Húsdýra-og fjölskyldugarðinum. Rætt var við hana í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

„Það gerðist hérna árið 2008 að Simla kom í heiminn sem er hreinkýr og fékk nafnið Regína af því að þá tók Regína Ósk þátt í Eurovision. Hefði það verið tarfur þá hefði það verið Friðrik Ómar.“

Hún segir starfsfólk hafa velt nafngiftum mjög fyrir sér undanfarna daga. Fyrsta lamb vorsins sé drottningin.

„Því hún er fyrsta lamb þessa vors. Hinir eru hrútar og eru þá kóngar. Kalli og Charles komu til greina. Líka Power og Kraftur en það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.