Innlent

Gefa Evrópu­ráðinu fundar­hamar eftir Siggu á Grund að gjöf

Atli Ísleifsson skrifar
Hamarinn hvílir á litlum stokki sem er holur að innan og þar má koma fyrir góðum skilaboðum til næstu formennsku.
Hamarinn hvílir á litlum stokki sem er holur að innan og þar má koma fyrir góðum skilaboðum til næstu formennsku. Stjr

Íslensk stjórnvöld munu gefa ráðherranefnd Evrópuráðsins útskorinn fundarhamar eftir listakonuna Sigríði Kristjánsdóttur, betur þekkt sem Sigga á Grund, að gjöf í tilefni af leiðtogafundinum sem hefst í Reykjavík á þriðjudag.

Fyrirmynd hamarsins er fundarhamar Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara sem upprunalega var gefinn Sameinuðu þjóðunum árið 1952 þegar nýjar höfuðstöðvar stofnunarinnar í New York voru teknar í notkun.

Frá þessu segir á vef stjórnarráðsins en hefð er fyrir því að formennskuríki Evrópuráðsins gefi Evrópuráðinu gjöf við lok formennskutímabilsins.

Fram kemur að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra muni sem forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins afhenda Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, fundarhamarinn á lokaathöfn leiðtogafundar Evrópuráðsins 17. maí. Lettar taka þá formlega við formennsku í ráðinu.

Sigríður Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Sigga á Grund. Magnús Hlynur

„Listakonan Sigríður Kristjánsdóttur, Sigga á Grund, skar hamarinn út, sem notaður verður til að stýra fundum ráðherranefndarinnar.

Efniviður Sigríðar í verkið er gamall peruviður sem að hennar sögn kemur einmitt frá gömlu meisturunum. Í upprunalegt verk sitt, sem stundum er kallað Ásmundarnautur, valdi Ásmundur Sveinsson þemað „Bæn víkingsins fyrir friði“, sem sést þegar vel er að gáð að hamarshöfuðið er stílfærður víkingur með spenntar greipar fyrir brjósti sér,“ segir í tilkynningunni.

Hamarinn hvílir á litlum stokki sem er holur að innan og þar má koma fyrir góðum skilaboðum til næstu formennsku. Á hamarinn er letrað á latínu og íslensku: Legibus gentes moderandae sunt - Með lögum skal land byggja.


Tengdar fréttir

Búin að skera út allar gangtegundir íslenska hestsins

Íslenskur hesturinn er í miklu metum og uppáhaldi hjá Sigríði Jónu Kristjánsdóttur, alltaf kölluð Sigga á Grund, útskurðarmeistara í Flóanum, enda var hún að ljúka við að skera út allar fimm gangtegundir hestsins. Auk þess var hún að gera risa drykkjarhorn úr nautgripahorni.

Eftirmynd af auga Lindu Pé komið upp á vegg

Efturlíking af auga Lindu Pétursdóttur, alheimsfegurðardrottingu er nú komið upp á vegg á safni í Flóanum en það var rennt og skorið út í tré. Listamaðurinn er mjög stoltur af auganu, svo ekki sé minnst á gesti safnsins, sem dást af verkinu og auga Lindu Pé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×