Verkföll hjá aðildarfélögum BSRB sem starfar hjá flestum stærstu sveitarfélögum landsins að Reykjavík undanskilinni hófust á miðnætti.
Starfsfólk félagsins hefur lagt niður störf á leikskólum í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ og í grunnskólum Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar. Verkfallið nær einnig til starfsfólk frístundaheimila.
Verkföllin á þessum stöðum verða í allan dag en á morgun hefur verið boðað til verkfalls hálfan daginn á sömu stöðum. Á næstu vikum verða síðan enn víðtækari aðgerðir í fjölda sveitarfélaga alla vikuna, ef ekki tekst að semja.
Ekkert samtal í gangi
BSRB og samband íslenskra sveitafélaga funduðu með sáttasemjara á föstudag sem ákvað að fundinum loknum að ekki væri tilefni til að boða til annars fundar.
„Þannig það er ekkert samtal í gangi,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
„Við vonumst auðvitað eftir því að samband Íslenskra sveitafélaga fari að sýna samningsvilja, þau hafa ekki gert það hingað til.“
Í samtali við fréttstofu segir Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla að hann hafi áhyggjur af því að verkfallið bitni mest á börnum í viðkvæmri stöðu sem þurfi á stuðningsfulltrúum að halda.
„Þetta eru börn sem eru viðkvæmust og bara þola hreinlega litla sem enga breytingu á sinni tilveru. Auðvitað kemur þetta niður á fleirum, kemur illa niður á kennurum, foreldrum og mun koma til með að koma niður á öðrum börnum. En þessi börn munu finna mest fyrir þessu.“

Þorvar segist hefði viljað sjá undanþágur veittar fyrir þessa hópa.
„Auðvitað er það þannig að þegar tveir deila og ná ekki samkomulagi að þá er gripið til svona aðgerða. En mér finnst við verða að passa upp á þessa viðkvæmustu hópa sem mega hreinlega ekki við því að það sé hróflað við tilverunni.“
Ekki verið veittar margar undanþágur
Sonja Ýr staðfestir að undanþágubeiðnir hafi borist, meðal annars frá foreldrum fatlaðra barna sem hafi verið synjað.
„Undanþágur eru veittar ef það varðar almannaöryggi og almannaheill. Þessi störf falla raunverulega ekki þar undir. Þetta er til að tryggja nauðsynlegt heilbrigði og annað, þannig það hafa ekki verið veittar margar undanþágur.“

Sonja segir að þegar fólk leggi niður störf sé búið að reyna allar aðrar leiðir til að knýja fram þessar kröfur sem eru a samningsborðinu.
„Þetta er fólk sem er á lægstu launum á vinnumarkaði og er að sinna ómissandi störfum. Það að veita undanþágur þýðir auðvitað að það er verið að drag bit úr verkfallinu.“