Lífið

Billie Eilish orðin einhleyp á ný

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Billie Eilish og Jesse Rutherford voru ansi vígaleg í Óskarspartýi Vanity Fair í mars.
Billie Eilish og Jesse Rutherford voru ansi vígaleg í Óskarspartýi Vanity Fair í mars. Getty/Lionel Hahn

Poppstjarnan Billie Eilish og rokkarinn Jesse Rutherford, söngvari The Neighbourhood, eru hætt saman eftir sjö mánaða samband. Framhjáhald ku ekki vera ástæðan.

Talsmaður Eilish greindi frá sambandsslitunum í yfirlýsingu í dag. 

Þar sagði að parið hefði hætt saman á vinsamlegum nótum og að þau væru enn góðir vinir. Þá kom þar einnig fram að orsök sambandsslitanna hefði ekki verið framhjáhald eins og hefur verið slúðrað um.

Að sögn gulu pressunar vestanhafs sást síðast til Eilish og Rutherford saman á Coachella í apríl. Það er því ekki ólíklegt að þau hafi slúttað sambandinu fyrir nokkrum vikum.

Fengu neikvæða athygli

Sambandið vakti mikla athygli, aðallega neikvæða, þegar Eilish greindi frá því í október í fyrra. Margir furðuðu sig á tíu ára aldursmuninum milli þeirra tveggja en Eilish er 21 árs og Rutherford er 31 árs. 

Parið gerði sjálft grín að aldursbilinu á Hrekkjavöku í fyrra þegar Eilish var klædd sem ungabarn en Rutherford sem gamall maður.

Á Hrekkjavöku í fyrra var Billie Eilish klædd í búning ungabarns með smekk og barnslega málningu en Jesse Rutherford var með skalla og grátt yfirvaraskegg eins og gamall karl.Instagram

Tengdar fréttir

Billie Eilish og kærastinn hætt saman

Söngkonan Billie Eilish og kærasti hennar, leikarinn Matthew Tylor Vorce, eru hætt saman. Vorce greinir sjálfur frá þessu á Instagram-síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.