Haf hjónin selja sögufræga miðbæjarperlu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 19. maí 2023 11:59 Hönnunarhjónin Karitas og Hafsteinn hafa sett fallegt einbýlishús sitt við Laufásveg til sölu. Hjónin og eigendur hönnunarstúdíósins Haf studio, Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson hafa sett sögufræga séreign við Laufásveg til sölu.
Húsið var byggt árið 1916 af Einari Arnórssyni ráðherra og bjó meðal annars Nóbelsskáldið Halldór Laxness í húsinu á árunum 1930 til 1939. Sagan segir að hann hafi meðal annars ritað bækurnar Heimsljós, Sölku Völku og Sjálfstætt fólk þegar hann bjó þar Eldhúsið er búið vandaðri innréttingu úr eik með góðu skápaplássi. Einstakur ítalskur marmari er á borðum, eyju og vegg. Eldhúseyja er staðsett í miðju eldhúsi með góðu vinnuplássi, SMEG gaseldavél, vaski og innbyggðri uppþvottavél.Adela Auriga. Hjónin keyptu eignina fyrir þremur árum og hafa gert það alfarið upp á einstakan hátt með áherslu á upprunalegan stíl og sjarma. „Við ákváðum þess vegna að fara frekar klassíska leið í endurbótum. Við héldum í upprunalega skrautlista og rósettur í loftum, og bættum við þar sem þurfti. Allir veggir voru kalkmálaðir sem gefa rýmunum mikinn sjarma. Svo ákváðum við að velja HAF FRONT í náttúrulegri eik fyrir eldhúsið, einnig lögum við gegnheila eik í síldarbein á neðri hæð,“ segir Hafsteinn. Ísskápurinn er innbyggður í eldhúsinnrétingu.Adela Auriga. Eignin er um 200 fermetra að stærð á tveimur hæðum með stórum gluggum og útsýni yfir Reykjavíkurtjörn. Á efri hæðinni er svefnherbergisgangur með þremur rúmum herbergjum, baðherbergi og svalir til norðurs þar sem horft er út á Reykjavikurtjörn. Neðri hæðin er búin tveimur rúmgóðum og björtum stofum með mikilli lofthæð og kamínu í annarri stofunni. Stofurnar eru tvær og staðsettar á neðri hæð hússins.Adela Auriga. Stofan er smart og hlýleg með kamínu.Adela Auriga. Fallegt fiskibeinaparket setur fallegan svip á húsið.Adela Auriga. Nánari upplýsingar má nálagast á fasteignavef Vísis. Líður vel í miðbænum Fjölskyldunni líður vel í miðbænum og ætlar að halda sér innan hverfisins þar sem þau geta gengið á milli vinnu og skóla. „Það er partur af okkur sem vill ekki fara héðan en svo kom upp spennandi verkefni sem gæti hentað. Það er stærra einbýlishús með stórum garði,“ segir Karitas. Stiginn á erfri hæðina er rómantískur með notalegu teppi.Adela Auriga. „Þetta var í rauninni alveg óvænt. Við erum með bílskúr sem við ætluðum að fara gera eitthvað við.En svo var það bara að hrökkva eða stökka. Það er bara gaman að prufa og sjá hvort þetta gangi,“ upplýsir Karitas. Hún var í þann mund að taka á móti fólki sem hafði sýnt húsinu áhuga þegar blaðamaður náði tali af henni. Hjónin þykja með eindæmum smekkleg og hefur verið fjallað um heimilin þeirra nokkrum sinnum í þáttunum Heimsókn með Sindra Sindrasyni. Hér að neðan má sjá þátt frá árinu 2020 þegar þau bjuggu á Sólvallagötu.
Fasteignamarkaður Reykjavík Tíska og hönnun Tengdar fréttir Karitas og Hafsteinn eiga von á sínu öðru barni Hjónin Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson sem eiga og reka Haf Studio og Haf Store eiga von á sínu öðru barni. 9. febrúar 2021 12:31 Fallegt heimili arkitektahjónanna í HAF Store við Sólvallagötu Í síðasta þætti af Heimsókn með Sindra Sindrasyni leit hann við arkitekta hjónunum Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni sem eiga og reka Haf Studio og Haf Store. 13. mars 2020 12:32 Karitas og Hafsteinn innréttuðu íbúðir við Sjónarveg Hönnunarhjónin Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson, eigendur HAF Store og HAF Studio, innréttuðu á dögunum íbúðir við Sjónarveg í Urriðaholti. Leitast var við að hafa létt, hlýlegt og klassískt yfirbragð á íbúðunum. 14. maí 2020 20:30 Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Fleiri fréttir Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Ljúffengur sumarréttur með burrata osti Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Falska söngkonan á leið í meðferð Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Tónleikaferðalagið í vaskinn eftir ummæli um Trump Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Fékk hjálp úr óvæntri átt í miðjum skilnaði Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lengi lifir í gömlum glæðum Rúrik og Pétur Jóhann þeir frægustu sem hún hefur hitt Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Logi Bergmann var tekinn New York Times lofar Snertingu Með lykilinn að því hvernig á að gera eftirhermu af Íslending Stjörnum prýdd dómnefnd í Ungfrú Ísland Sumarlegur fiskréttur á pönnu Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi „Hann er fullkominn eins og hann er“ „Ég var dómharður og ömurlegur gæi“ „Ég var með beinflísar stingandi inn í mænuna mína“ Richard Simmons látinn Shannen Doherty látin Dægrastytting í heimsfaraldri uppskar óvænta frægð Veiðiþættirnir Allt í keng: Nýi skólinn hittir gamla skólann Sjá meira
Karitas og Hafsteinn eiga von á sínu öðru barni Hjónin Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson sem eiga og reka Haf Studio og Haf Store eiga von á sínu öðru barni. 9. febrúar 2021 12:31
Fallegt heimili arkitektahjónanna í HAF Store við Sólvallagötu Í síðasta þætti af Heimsókn með Sindra Sindrasyni leit hann við arkitekta hjónunum Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni sem eiga og reka Haf Studio og Haf Store. 13. mars 2020 12:32
Karitas og Hafsteinn innréttuðu íbúðir við Sjónarveg Hönnunarhjónin Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson, eigendur HAF Store og HAF Studio, innréttuðu á dögunum íbúðir við Sjónarveg í Urriðaholti. Leitast var við að hafa létt, hlýlegt og klassískt yfirbragð á íbúðunum. 14. maí 2020 20:30