Viðskipti erlent

Meta í samkeppni við Twitter

Samúel Karl Ólason skrifar
Meta er sagt ætla að opinbera nýjan samfélagsmiðil til höfuðs Twitter í sumar.
Meta er sagt ætla að opinbera nýjan samfélagsmiðil til höfuðs Twitter í sumar. EPA/JOHN G. MABANGLO

Útlit er fyrir að Meta ætli í samkeppni við Twitter. Fregnir hafa borist af því að fyrirtækið muni gefa út í sumar forrit, sem tengist Instagram, þar sem notendur geta varpað fram stuttum textaskilaboðum til fylgjenda sinna og annarra. Til stendur að taka miðilinn í notkun í sumar.

Sjálfstæður blaðamaður birti á dögunum mynd sem á að vera af markaðskynningu Meta á forritinu nýja. Það hefur enn ekki fengið nafn en er kallað P92 eða Barcelona innan veggja Meta. Kynningin virðist beinast að þekktu fólki sem Meta er að reyna að fá á nýja samfélagsmiðilinn og er til dæmis bent á að auðvelt sé að yfirfæra hverjum maður fylgir á milli forrita Meta.

Þar segir einni að miðillinn nýi verði að hluta til tengdur öðrum eins og Mastodon, sem geri notendum auðveldara að öðlast nýja fylgjendur.

Skjáskot af þessari kynningu má sjá hér að neðan í tísti blaðamannsins Liu Haberman. Nýi miðillinn lítur út eins og nokkurs konar blanda af Instagram og Twitter.

Í frétt tæknimiðilsins The Verge segir að þessi nýi samfélagsmiðill, sem tengist Instagram, muni mögulega auka vinsældir þess síðarnefnda til muna.

Twitter hefur átt í þó nokkrum vandræðum síðan auðjöfurinn Elon Musk keypti samfélagsmiðilinn í fyrra. Við kaupin jókst skuldsetning fyrirtækisins mjög en Musk hefur gengið illa að ná til auglýsenda í Bandaríkjunum.

Sjá einnig: Linda Yaccarino ráðin nýr forstjóri Twitter

Notendur hafa einnig verið að leita annað samhliða auknum fjölda nettrölla og þess að Musk hefur hleypt öfgafólki sem hafði verið bannað á Twitter aftur þar inn og hafa samfélagsmiðlar sambærilegir Twitter, eins og Mastodon og Bluesky notið aukinna vinsælda. Með því að nota nýja miðilinn og tengja hann Instagram sleppur fólk þó við að finna nýja fylgjendur og aðra til að fylgja.

TechCrunch segir annan málsmetandi aðila hafa deilt svipuðum upplýsingum um nýja samfélagsmiðil Meta en til stendur að taka hann í notkun í sumar. Talsmenn Meta hafa ekki viljað tjá sig um fregnirnar við fjölmiðla ytra en hafa ekki neitað þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×