Markaðssókn banka á íbúðamarkaði kynti undir verðbólgu
![Staðan á lánamarkaði tók breytingum í takt við skarpar vaxtalækkanir Seðlabankans í faraldrinum og bankarnir juku verulega útlán sín til íbúðakaupa.](https://www.visir.is/i/BCBAA05E0E8542F94BF901D5D143156DDEE4F5EED4FCB59288122E0101993753_713x0.jpg)
Tilfærsla nýrra íbúðalána frá lífeyrissjóðum til banka, sem átti sér stað eftir að vextir voru lækkaðir verulega í upphafi heimsfaraldursins, hafði þau áhrif að peningamagn í umferð jókst og þar með verðbólguþrýstingur. Ólíkt útlánum lífeyrissjóða eru bankalán þess eðlis að nýtt fjármagn verður til við veitingu þeirra.