Bíó og sjónvarp

Anatomi­e d'une chute hlaut Gull­pálmann

Árni Sæberg skrifar
Jane Fonda afhenti Justine Triet Gullpálmann eftirsótta.
Jane Fonda afhenti Justine Triet Gullpálmann eftirsótta. Pascal Le Segretain/Getty

Kvikmynd franska leikstjórans Justine Triet, Anatomi­e d'une chute, sem mætti útleggja sem Anatómía falls, hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í kvöld. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem kvikmynd í leikstjórn konu hlýtur verðlaunin, sem eru ein þau eftirsóttustu í kvikmyndabransanum.

Kvikmyndin er lögfræðidrama um rannsókn á máli vinsæls rithöfundar, sem leikinn er af Söndru Hüller, sem grunuð er um að hafa myrt eiginmann sinn.

Triet tók við verðlaunastyttunni af goðsögninni Jane Fonda, sem fagnaði því í ræðu sinni hversu margar konur áttu kvikmynd sem barðist um verðlaunin að þessu sinni, en þær voru sjö talsins.

Triet varð þriðja konan á eftir þeim Jane Campion, sem leikstýrði Píanóinu árið 1993 og Juliu Ducournau, sem leikstýrði Titane fyrir tveimur árum, til þess að hreppa Gullpálmann.

Aðrir sigurvegarar kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2023:

  • Grand Prix: The Zone Of Interest í leikstjórn Jonathans Glazer
  • Besti leikstjóri: Tran Anh Hung fyrir The Pot-Au-Feu
  • Besta handrit: Monster eftir Yuji Sakamoto
  • Besta leikkona í aðalhlutverki: Merve Dizdar fyrir About Dry Grasses
  • Besti leikari í aðalhlutverki: Kōji Yakusho fyrir Perfect Days
  • Camera d’Or (besta fyrsta kvikmynd leikstjóra): Inside the Yellow Cocoon Shell í leikstjórn Thien An Pham
  • Gullpálmi stuttmynda: 27 í leikstjórn Flóra Anna Buda
  • Hinsegin pálminn (verðlaun fyrir kvikmyndir um málefni hinsegin fólks: Monster

Tengdar fréttir

Gullpálminn fyrir ádeilu með löngu æluatriði

Kvikmyndin „Þríhyrningur depurðarinnar“ eftir sænska leikstjórann Ruben Östlund hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi. Henni er lýst sem meinhæðinni samfélagsádeilu með langdregnu æluatriði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.