Lífið

Júní­spá Siggu Kling: Það er verndar­hendi yfir nautinu

Sigga Kling skrifar

Elsku Nautið mitt, það hefur verið sterkur baráttuandi í kringum þig og þú hefur sigrað margt. Vertu þakklátt fyrir það sem þú hefur gert á undanförnum mánuðum því það er að byggjast upp svo sterkur kraftur sem þú nýttir þér til að hjálpa öðrum og svo líka sjálfu þér. Eitt sterkasta hlutverk þitt í lífinu er að þjóna mannkyninu. Ef þú lærir að vera snillingur í þjónustu þá stoppar þig ekki nokkur skapaður hlutur. Aðalsetningin þín á að vera: Já ekkert mál, og þá kemur lausnin í kjölfarið.

  • Nautið er frá 20. apríl til 20. maí.

Vegna þess hversu staðföst og metnaðargjörn persóna þú ert, þá geturðu verið viss um að ef þig vantar hjálp með eitthvað þá þarftu bara að spyrja. Ekki búast við að hjálpin komi ósjálfrátt og fólk í kringum þig eigi að vita hvernig þér líður. Þú getur látið svoleiðis pirring draga þig niður í þunglyndi, en það er bara ákvörðun sem þú þarft að eiga með sjálfu þér.

Það er stórt vandamál tengt þér sem á það til að draga úr þér mátt, það tengist samt engu sem þú getur stjórnað og einhver lausn virðist koma i kringum eða upp úr 29. júní. Þú færð það góða sem þú átt skilið og yfir þér er verndarhendi, leyfðu þessari dásamlegu orku að streyma í gegnum þig þá hverfur streitan og jafnvel líkamlegir verkir.

Þú getur fengið þá ást sem þú vilt en þá þarftu að taka fyrsta skrefið og láta stoltið ekki drepa þig. Það verður svo mikið líf hjá þér og í kringum þig og leyfðu þér að sleppa fram af þér beislinu öðru hverju. Hinum fleygu orðum hennar Ellý Ármanns sem er í Nautsmerkinu er sérstaklega beint til þín: „Allt er eins og það á að vera“.

  • Elizabeth Alexandra Mary, fyrrum drottning Bretlands, 21. apríl
  • Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur og ljóðskáld, 23. apríl
  • Gigi Hadid, fyrirsæta, 23. apríl
  • William Shakespeare, leikari, 26. apríl
  • Melissa Viviane Jefferson (Lizzo), söngkona, 27. apríl
  • Garðar Thór Cortes, óperusöngvari, 2. maí
  • Eliza Jean Reid, fyrrum forsetafrú Íslands, 5. maí
  • Katrín Tanja Davíðsdóttir, crossfit stjarna, 10. maí
  • Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, 14. maí





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.