Tap niðurstaðan í lokaleik Messi fyrir PSG Aron Guðmundsson skrifar 3. júní 2023 20:52 Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Paris Saint-Germain Vísir/Getty Paris Saint-Germain tapaði í kvöld gegn Clermont Foot á heimavelli í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar.
Fyrir leik var ljóst að Messi og spænska varnartröllið Sergio Ramos myndu yfirgefa herbúðir PSG eftir tímabilið og voru þeir báðir í byrjunarliði liðsins í kvöld. Ramos gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu eftir stoðsendingu frá Vitinha og aðeins fimm mínútum síðar bætti Kylian Mbappé við öðru marki PSG úr vítaspyrnu. Gestirnir í Clermont Foot rönkuðu þá við sér og náðu inn tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiksins og stóðu leikar því jafnir í hálfleik, 2-2. Það var síðan á 63. mínútu sem Grejohn Kyei bætti við þriðja marki Clermont í leiknum og kom liðinu um leið yfir í fyrsta sinn en hann hafði í fyrri hálfleik brennt af vítaspyrnu. Reyndist þetta lokamark leiksins og kvöddu því Messi og Ramos Parísarborg með tapi í lokaleik sínum. Messi spilaði 41 leik á nýafstöðnu tímabili með PSG, skoraði 21 mark og gaf tuttugu stoðsendingar.
Franski boltinn Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Mark Martinez lyfti Inter á toppinn Fótbolti Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Fleiri fréttir Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Sjá meira