Lífið

Fólk spari tárin þrátt fyrir brott­hvarf „drottningar bíóanna“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ásgrímur Sverrisson er kvikmyndaframleiðandi og ritstjóri kvikmyndavefsins Klapptré.
Ásgrímur Sverrisson er kvikmyndaframleiðandi og ritstjóri kvikmyndavefsins Klapptré.

Kvikmyndaframleiðandi og ritstjóri Klapptré segir það á vissan hátt leitt að kvikmyndasýningum eigi að hætta í Háskólabíó. Hann segir lokunina rifja upp margar minningar en svo, að sjálfsögðu, heldur lífið bara áfram.

Fyrr í vikunni var greint frá því Sena hafi ákveðið að segja upp leigusamningi sínum um rekstur kvikmyndahúss í Háskólabíói í Reykjavík frá og með næstu mánaðamótum. Hafa sýningar verið sýndar þar í 62 ár. Þó mun önnur starfsemi halda áfram í húsinu, svo sem kennsla, ráðstefnur og fundir. 

Ásgrímur Sverrisson, kvikmyndaframleiðandi og ritstjóri kvikmyndavefsins Klapptré, segir að það að kvikmyndasýningum ljúki í húsnæðinu sé leitt á vissan hátt og rifji upp margar góðar minningar. En eins og eftir flest annað, þá heldur lífið bara áfram. Hann telur að fólk sem hefur vant komur sínar í Háskólabíó muni spara tárin fyrir betra tilefni.

„Það mun gráta hástöfum á öxlina á þér. Nei, nei. Ég held nú ekki. Þetta er drottning bíóanna. Þá á ég við stóra salinn en það er langt síðan þeir hættu að nota hann í reglulegar bíósýningar. Hins vegar hefur hann verið hingað til og ég á ekki von á öðru en að það heldur áfram, að þetta er frumsýningarsalur íslenskra bíómynda. Er lang besti salurinn til slíks á landinu. Þetta er náttúrulega einn af mikilfenglegustu kvikmyndasölum sem ég hef komið í og hef ég komið í kvikmyndahús víða um heim þannig hann stendur algjörlega fyrir sínu,“ segir Ásgrímur. 

Klippa: Saga kvikmyndasýninga í húsnæði Háskólabíós lýkur

Háskólabíó er alls ekki fyrsta bíóið sem Íslendingar þekkja sem hefur horfið á brott. Til dæmis er Gamla bíó nú samkomusalur, Austurbæjarbíó nú pílustaður, Tjarnarbíó leikhús og Borgarbíó á Akureyri orðið að leiktækjasal.

„Þau voru lang flest hér í miðborginni en svo hafa þau smám saman færst í úthverfin. Nú eru stærstu bíóin þar, í Álfabakka, Egilshöll og Smárabíó,“ segir Ásgrímur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.