Þjálfarinn Karitas María Lárusdóttir og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Gylfi Einarsson gengu í það heilaga á Alicante á Spáni um helgina. Athöfnin var hin glæsilegasta og fór fram undir berum himni á La Finca Resort hótelinu. Hjónin mættu svo akandi á hvítum golfbíl í veisluna.
Fjöldi fólks mætti til að fagna ástinni með brúðhjónunum og mátti sjá glitta í nokkur þekkt andlit.
Fyrrum landsliðsmarkmaðurinn í knattspyrnu, Hannes Þór Halldórsson, og fjölmiðlamaðurinn Hjörvar Hafliðason, birtu mynd af sér saman á Instagram þar sem þeir voru prúðbúnir í ljósum jakkafötum með sólina í augunum.
Kristbjörg Jónasdóttir, athafnakona og eiginkona knattspyrnumannsins, Aron Einars Gunnarsonar, mætti ein síns liðs þar sem Aron var upptekinn vegna landsliðsverkefna.
Förðunarmeistarinn Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir, betur þekkt sem Silla, farðaði Karitas fyrir stóra daginn. Silla hefur gert garðinn frægan í heimi förðunar á Íslandi en hún er meðal annars stofnandi Reykjavík Makeup School.
Kvöldið fyrir brúðkaupið klæddust hluti af karlkyns gestum brúðhjónanna samstæðum fötum með veski sem átti að líkjast fatastíl hins vinsæla kírópraktor Guðmundar Birkis Pálmasonar, eða Gumma kíró. Gummi hefur afar dýran fatastíl og klæðist merkjum á borð við Gucci, Balenciaga og Louis Vuitton. Dömurnar klæddu sig upp í stíl Dóru Júlíu, plötusnúðs og blaðamanns hér á Vísi.
Fjölmiðlaparið Tómas Þór Þórðarson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir voru í banastuði. Tómas Þór og Gylfi vinna saman við útsendingar af enska boltanum á Símanum.
Skallatennis og lúksus
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og fjölskylda fóru í frí til Alicante á Spáni á dögunum. Fjölskyldan gisti á lúksus hótelinu, SH Villa Gadea, sem er fimmtán mínútum frá Benidorm.
„Þessi tvö drógu pabba sinn ansi oft með sér í skallatennis á Spáni um daginn,“ skrifaði Jón við mynd af sér með tveimur eldri börnum sínum. Boltinn aldrei langt undan en Jón spilaði á sínum tíma með FH.
Siggi Þór fagnaði ástinni á Ítalíu
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, betur þekktur sem Siggi Þór, fagnaði ástinni í bænum Celle Ligure á Ítalíu, í brúðkaupi vinar síns sem var að ganga að eiga ítalska mær.
Siggi Þór og Sonja eiga von á barni
Fregnir af litlum krílum áberandi
Fanney Sandra Albertsdóttir,fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson eiga von á sínum öðrum dreng saman, en sjötta barn Garðars.
„5-1 fyrir strákunum,“ skrifar Fanney við myndband á Instagram sem sýnir þegar fimm ára sonur þeirra sprengir svokallaða kynjablöðru og blátt skraut flýgur út.
Safna í fótboltalið með barneignum
Dóra Dúna og Guðlaug eignuðust dóttur
Ljósmyndarinn Dóra Dúna Sighvatsdóttir og Guðlaug Björnsdóttir, markaðsstjóri Viss, eignuðust dóttur um helgina. Stúlkan er fyrsta barn þeirra saman en fyrir á Guðlaug þrjú börn.
Mætti á ljóshraða á laugardagskvöldi
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og eiginmaður hennar Jón Skaftason eignuðust dóttur um helgina. Stúlkan er þeirra þriðja barn saman en fyrir átti Hildur einn son.
„Á ljóshraða eftir langa bið, laugardagskvöldið 10. júní, fæddist okkur Jóni þessi hrausta stúlka. Heilar 17 merkur og 55 cm af mýkt og fegurð. Ekkert í lífinu er betra.
Minn eigin afmælisdagur rann upp degi síðar og var sá ljúfasti hingað til. Takk fyrir allar kveðjurnar,“ skrifaði Hildur við færsluna.
Hildur Björnsdóttir og Jón Skaftason eignuðust stúlku
Bakarasonur skírður
Sonur bakarans Gunnlaugs Ingasonar, eða Gulla Arnars, og Kristelar Þórðardóttur var skírður um helgina. Litli drengurinn fékk nafnið Arnar Ingi.
Gummi Tóta nefnir dótturina
Dóttir knattspyrnu- og tónlistarmannsins, Guðmundar Þórarinssonar og kærustu hans, Guðbjargar Óskar Einarsdóttur, var einnig nefnd um helgina og fékk nafnið Hera Malen. Parið deildi fregnunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum með fjölskyldumynd frá deginum.
Guðmundur og Guðbjörg búa á eyjunni Krít í Grikklandi þar sem hann spilar fótbolta með OFI Crete í efstu deild gríska fótboltans.
Gummi Tóta og Guðbjörg eignuðust stúlku
Edda Björgvins lauk námi
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir lauk diplómanámi í sálgæslu frá Háskóla Íslands á dögunum.
„Ég verð að segja að ég er afar stolt núna,“ skrifar Edda við færsluna.
Sumarleg í útskrift
Sunneva Einars áhrifavaldur mætti sumarleg í útskrift til vinkonu sinnar, Jóhönnu Helgu Jensdóttur um helgina. Jóhanna útskrifaðist með B.S próf í iðjuþjálfunarfræði.
Pósað á nærfötunum
Tónlistarkonan Dagbjört Rúriksdóttir sat fyrir sem undirfatamódel á dögunum.
Sleppitúr með pabba
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra, fór í svokallaðan sleppitúr með pabba sínum, Sigurbirni Magnússyni lögfræðingi, um helgina. Sleppitúr felur í sér þegar hestum er sleppt í haga á vorin.
Glöð og þakklát
Leikkonan Íris Tanja Flygenring fékk tilnefningu sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt sem Emma í leikritinu Samdráttum.
Colour Run gleði
Eva Ruza Miljevic, skemmtikraftur og útvarpsmaðurinn Gústi B, voru kynnar í skemmtihlaupinu Color Run um helgina.
„Another year, another success með litabombuliðinu mínu. Þykir ótrúlega vænt um þennan viðburð því hann skaut mér inn í skemmtibransann árið 2015,“ skrifar Eva.
Forsetafrúin tók þátt í hlaupagleðinni
Eliza Reid forsetafrú tók þátt í litahlaupinu um helgina.
Rakaði allt skeggið af
Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson var óviss hvernig hann vildi hafa skeggið sitt og prófaði nokkrar útfærslur. „Ákvað að raka skeggið. Prófaði nokkrar útfærslur þangað til ég komst að þeirri niðurstöðu að taka það bara allt,“ skrifaði Valdimar við myndafærsluna.
Hönnunargleði í Kaupmannahöfn
Listunnendur og áhrifavaldar skelltu sér á hönnunarhátiðina, 3daysofdesign í Kaupmannahöfn, þar á meðal hönnuðurinn og bloggarinn Svana Lovísa kennd við svart á hvítu.
Sól og blíða á Akureyri
Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir sólaði sig og naut veðurblíðunnar í Skógaböðunum á Akureyri um helgina.