Lífið

Glæsi­legir gestir á Grímunni

Íris Hauksdóttir skrifar
Grímuverðlaunin voru afhent í gærkvöldi.
Grímuverðlaunin voru afhent í gærkvöldi.

Prúðbúið sviðslistafólk fjölmennti í Borgarleikhúsið í gærkvöldi þar sem Grímuverðlaunahátíðin var haldin í ár.

Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem hátíðin er haldin og er óhætt að segja að mikil eftirvænting hafi legið í loftinu.

Sýningin Ellen B sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu var valin leiksýning ársins en leikstjórinn Benedict Andrews  hampaði sömuleiðis verðlaunum fyrir leikstjórnina. 

Sproti ársins til óperugrasrótarinnar

Nína Dögg Filippusdóttir var valin leikkona ársins í aðalhlutverki og Hallgrímur Ólafsson leikari ársins í aðalhlutverki. Benedikt Erlingsson og Íris Tanja Flygering stóðu uppi sem sigurvegarar fyrir leik sinn í aukahlutverki.

Síðustu dagar Sæunnar eftir Matthías Tryggva Haraldsson var valið leikrit ársins. 

Sproti ársins féll í skaut óperugrasrótarinnar sem í sameiningu skipaði átta af þeim 53 sviðslistaverkum sem bárust á borð Grímunefndar þetta árið.

Standandi lófatak

Arnar Jónsson hlaut heiðursverðlun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista undir standandi lófataki áhorfenda.

Glæsileikinn og fegurðin draup af sviðslistafólki Íslands sem naut kvöldsins og hátíðarinnar til hins ítrasta og fagnaði saman afrakstri leikársins 2023.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndaveislu frá kvöldinu.

Þórey Sigþórsdóttir, Halldóra Rósa Björnsdóttir og Linda ÁsgeirsdóttirAnton Brink

Sigurbjartur Sturla, Brynhildur Guðjónsdóttir, Sveinn Ólafur og Unnsteinn Manuel ásamt vinum.Anton Brink

Björn Ingi Hilmarsson tengdafaðir dansarans og leikkonunnar Ellenar Bæhrenz, Þorgils Helgason og Unnur Elísabet Gunnarsdóttir en sú síðastnefnda var tilnefnd fyrir dans og sviðshreyfingar. Anton Brink

Ofurparið Elísabet Gunnarsdóttir og Gunnar Steinn mættu á verðlaunin til hvatningar vinkonu sinni Þyri Huld sem sópaði til sín verðlaunum. Með þeim á myndinni er Guðrún Helga fatahönnuður. Anton Brink

Unnsteinn Manuel stóð uppi sem sigurvegari fyrir hljóðmynd árins. Hér er hann með samstarfsfélaga sínum og vini Haraldi Stefánssyni tónlistarmanni. Anton Brink

Áslákur Ingvarsson, Þórhallur Auður Helgason, Sólveig Sigurðardóttir, Sigurður Helgi og Ragnar Pétur Jóhannsson skipa Sviðslistahópinn Óð en þau hlutu sprota ársins fyrir sýninguna Don Pasquale í Þjóðleikhúskjallaranum.Anton Brink

Sólveig Arnarsdóttir og Sigurður Þór Óskarsson.Anton Brink

Þorsteinn Backmann, Edda Björg, Magnús Geir Þjóðleikhússtjóri og eiginkona hans Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir.Anton Brink

Gissur Páll Gissurarson, Matthildur Anna Gísladóttir, Björk Níelsdóttir og Gunnlaugur Bjarnason.Anton Brink

Kristín Þóra Haraldsdóttir var tilnefnd sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Ellen B. Hér er hún með Söru Martí sem hefur barist öturlega fyrir Tjarnarbíói undanfarið. Anton Brink

Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri, Guðni Th. forseti Íslands ásamt þeim Orra Huginn Ágústssyni, forseta Sviðslistasambands Íslands og Millu Clarke sem tilnefnd var fyrir leikmynd sína í Macbeth.Anton Brink

Brynhildur Karlsdóttir ásamt vinkonum en kærasti hennar, Matthías Tryggvi Haraldsson hampaði sigri fyrir leikrit ársins, Síðustu dagar Sæunnar.Anton Brink

Sigurður Ingvarsson, Oddur Júlíusson, Ebba Katrín Finnsdóttir og Unnsteinn Manuel ásamt Sesselíu Katrínu Árnadóttur, bróðurdóttur Ebbu, en hún lék í sýningunni Ex sem tilnefnd var til verðlauna.Anton Brink

Vignir Rafn og Sveinn Ólafur voru kampakátir með kvöldið.Anton Brink

María Ellingssen mætti með dóttur sinni. Anton Brink

Ásthildur Úa var tilnefnd bæði sem leikkona í aðal og aukahlutverki. Hér er hún ásamt unnusta sínum Þóri Hlyn.Anton Brink

Íris Tanja Flygering og Elín Ey mættu prúðbúnar á verðlaunin en Íris stóð uppi sem sigurvegari sem leikkona ársins í aukahlutverki.Anton Brink

Leikaraparið Hákon Jóhannesson og Þórey Birgisdóttir mættu eldhress ásamt Bjarni Snæbjörnssyni. Anton Brink

Tónlistarstjórinn Þorvaldur Bjarni ásamt leikhússtjóra leikfélagsins á Akureyri, Mörtu Nordal mættu á hátíðina ásamt leikaraparinu Júlí Heiðari og Þórdísi Björk á verðlaunin.Anton Brink

Grínistinn góðkunni, Gunni Helga tók ekki annað í mál en að fá mynd af sér með Þjóðleikhússtjóranum Magnúsi Geir.Anton Brink

Björgvin Franz Gíslason hampaði sigri fyrir frammistöðu sína í söngleiknum Chicago sem sýndur var á Akureyri. Hér er hann með þeim Berglindi og Jónínu.Anton Brink

Tónlistarfólkið Margrét Eir og Þorvaldur Bjarni voru kampakát með kvöldið. Anton Brink

Stjörnuparið Einar Stefánsson og Sólbjört Sigurðardóttir mættu á hátíðina. Anton Brink

Hallgrímur Ólafsson fagnaði sigri sem leikari ársins í aðalhlutverki. Hann er hér með eiginkonu sinni Matthildi Magnúsdóttur. Anton Brink

Svandís Dóra hefur heldur betur slegið í gegn eftir frammistöðu sína í þáttaröðinni Afturelding. Anton Brink

Hrafnhildur Hagalín listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins.Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.