Veður

Hiti að 24 stigum og hlýjast norðan- og austan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Um helgina eru ekki stórar breytingar í kortunum.
Um helgina eru ekki stórar breytingar í kortunum. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, og skýjuðu með köflum. Það verður lengst af þurrt um landið vestanvert en bjart að mestu austantil en stöku skúrir þar eftir hádegi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði á bilinu tíu til 24 stig og verður hlýjast inn til landsins fyrir norðan og austan.

„Um helgina eru ekki stórar breytingar í kortunum. Suðlæg eða breytileg átt, skýjað með dálítilli vætu vestantil en bjart að mestu á austurhelmingi landsins en líkur á síðdegisskúrum þar. Frekar svalt vestanlands en hlýtt á Austurlandi.

Frá og með mánudegi er útlit fyrir breytilegar áttir, vætu með köflum á víð og dreif og kólnar hægt og bítandi í veðri.“

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag (lýðveldisdagurinn): Suðvestlæg átt 3-8 m/s en 8-13 norðvestantil. Dálítil rigning um vestanvert landið, en bjart að mestu austantil og sums staðar þokusúld við ströndina. Hiti 10 til 25 stig yfir daginn, hlýjast í innsveitum austanlands.

Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og væta með köflum vestanlands. Bjart að mestu austantil með stöku síðdegisskúrum. Hiti 8 til 23 stig, svalast við norður- og vesturströndina, en hlýjast á Austurlandi.

Á mánudag: Breytileg átt 3-8. Víða rigning eða skúrir en þurrt og bjart að mestu austanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðaustantil.

Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 og dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum. Hiti yfirleitt 8 til 18 stig að deginum, hlýjast fyrir austan.

Á miðvikudag (sumarsólstöður): Suðlæg eða breytileg átt, bjart með köflum en stöku skúrir á víð og dreif. Hiti yfirleitt 8 til 13 stig.

Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt. Rigning eða súld með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu en annars úrkomulítið. Hiti 10 tli 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×