Lífið

Rúrik Gísla einn liðs­manna stráka­bandsins IceGu­ys

Svava Marín Óskarsdóttir og Ólafur Björn Sverrisson skrifa
Rúrik Gíslason hefur gefur út nokkur lög á síðastliðnum árum.
Rúrik Gíslason hefur gefur út nokkur lög á síðastliðnum árum. Stefán John Turner

Strákabandið IceGuys gaf út lagið Rúlletta á miðnætti sem er fyrsta lag bandsins og er sannkallaður sumarsmellur. Fjórir landsþekktir tónlistarmenn hafa þegar kynnt sveitina á samfélagsmiðlum.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason fimmti liðsmaður sveitarinnar.

Hljómsveitin samanstendur af fimm þekktum íslenskum tónlistarmönnum.

„Ég get sagt þér að IceGuys er nýtt upphaf og það er meira á leiðinni,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson einn af fimm meðlimum IceGuys.

„Þetta er alvöru sumarbanger, stemmning og gauragangur. Lestin er farin af stað og allir velkomnir um borð,“ segir hann og getur lítið upplýst frekar um málið að svo stöddu.

Stór nöfn koma saman

Tónlistarmennirnir Jón Jónsson, Aron Can og Herra Hnetusmjör eru einnig meðlimir sveitarinnar. 

Lagið Rúlletta er samið meðlimum sveitarinnar og pródúsentinum Þormóði Eirikssyni, sem hefur samið hvern smellinn á eftir öðrum. 

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan.

Rúrik er ekki beinlínis nýgræðingur í tónlistarbransanum en hann út lagið Older árið 2020 í samstarfi við plötusnúðinn Doctor Victor.

Ekki náðist í Rúrik við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju

Fyrirsætan og knattspyrnukappinn fyrrverandi Rúrik Gíslason og Sóley Birna Horcajada Guðmundsdóttir eru nýtt par. Þetta hefur Vísir eftir heimildum sínum. 

Rúrik var syngjandi górilla í Þýskalandi

Rúrik Gíslason tók nýlega þátt í þýsku útgáfunni af þáttunum The Masked Singer. Á Instagram-síðu sinni segist hann vera þakklátur fyrir reynsluna sem hann öðlaðist í keppninni. 

Nöfnin sem þekktir Íslendingar spara

Nöfn eru eitt helsta persónueinkenni fólks, einkum og sér í lagi þegar kemur að þjóðþekktum einstaklingum. Listamenn fara ýmsar leiðir til að skara fram úr eða vekja athygli með eftirminnilegum viðurnefnum en svo eru aðrir sem velja að sleppa for -eða millinafni sínu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.