Lífið

Slokknað í ástar­logum rappara og popp-pönkara

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Avril Lavigne byrjuðu að deita í upphafi árs og opinberuðu samband sitt á tískuvikunni í París í mars. Nú eru þau hætt saman.
Avril Lavigne byrjuðu að deita í upphafi árs og opinberuðu samband sitt á tískuvikunni í París í mars. Nú eru þau hætt saman. Getty/Arnold Jerocki

Samband tónlistarkonunnar Avril Lavigne og rapparans Tyga hefur runnið sitt skeið tæpum fjórum mánuðum eftir það hófst.

Það vakti mikla athygli í mars þegar Avril Lavigne, stundum uppnefnd „prinsessa popp-pönksins“ og rapparinn Tyga opinberuðu samband sitt með kossi á tískuvikunni í París. Orðrómur hafði þá gengið um samband þeirra í þó nokkurn tíma.

Nú hafa slúðurmiðlar vestanhafs greint frá því að parið hafi slitið sambandi sínu fyrir nokkrum vikum. Hins vegar segja heimildarmenn TMZ að parið hafi lokið sambandi sínu á góðum nótum og að þau væru enn vinir.

Tyga og Avril Lavigne kela í partýi á vegum Mugler x Hunter Schafer á tískuvikunni í París í mars.Getty/Arnold Jerocki





Fleiri fréttir

Sjá meira


×