Veður

Skúra­veður sunnan- og vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti veður á bilinu tíu til fimmtán stig, en að tuttugu stigum norðanlands.
Hiti veður á bilinu tíu til fimmtán stig, en að tuttugu stigum norðanlands. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustanátt á landinu í dag þar sem víðast hvar verður vindur á bilinu þrír til tíu metrar á sekúndu og hvassast á Suðausturlandi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði skúraveður sunnan- og vestantil en bjart með köflum á Norðausturlandi. Á Austfjörðum sé rakt loft og þoka og súld verði viðloðandi það svæði í dag.

Hiti veður á bilinu tíu til fimmtán stig, en að tuttugu stigum norðanlands.

„Á morgun er síðan vona á vaxandi austlægri átt með rigningu á morgun, 15-23 m/s með suðurströndinni og gular viðvaranir í gildi fyrir það svæði. Lengst af þurrt á norðanverðu landinu en fer að rigna þar undir kvöld,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi vegna ausan hvassviðris eða storms á morgun, frá hádegi og til klukkan 19 um kvöld.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Gengur í austan 8-15 m/s, en 15-23 við suðurströndina. Rigning á sunnaverðu landinu og einnig norðantil síðdegis. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norðurlandi.

Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s, hvassast syðst. Rigning með köflum, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 10 til 16 stig.

Á fimmtudag og föstudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir eða dálítil rigning í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.

Á laugardag: Austan- og norðaustanátt með vætu víða um land. Hiti 8 til 14 stig.

Á sunnudag: Útlit fyrir ákveðna norðanátt með rigningu og kólnandi veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×