„Það blasir við að stjórnendur Íslandsbanka hafa algjörlega brugðist trausti þjóðarinnar. Þeir voru að sýsla með hlut almennings og það misfórst hrapalega eins og skýrsla fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sýnir svo glögglega. Ekki var farið að lögum og brotin eru alvarleg og kerfislæg. Þetta eru bara algjör vonbrigði,“ segir Lilja D. Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra.
Óásættanleg stjórn
„Stjórnin á bankanum er óásættanleg að mínu mati og það á eftir að fara nánar yfir þessi mál á vettvangi ráðherranefndar um efnahagsmál en ég verð að segja það fyrir mitt leyti að þessi framganga er mjög ósannfærandi og ekki til þess fallin að búa til traust,“ segir Lilja og bætir við að ekki sé langt síðan Ísland gekk í gengum algjört hrun á fjármálamarkaði og því þurfi að fara varlega traust. „Og það hefur ekki gengið upp stjórnendum Íslandsbanka.“Skýrslan áfellisdómur
Að sögn Lilju er margt áhugavert sem fram kemur í skýrslu fjármálaeftirlits Seðlabankans og hrósar hún fjármálaeftirlitinu fyrir góða skýrslu. Aðspurð hvort hún sjái fyrir sér að stjórnendur Íslandsbanka haldi áfram störfum sínum segir Lilja það alveg skýrt í sínum huga að skýrslan sé mikill áfellisdómur.Að mati fjármálaeftirlits Seðlabankans eru brot bankans við söluna á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum í mars í fyrra ekki tilfallandi heldur alvarleg og kerfislæg. Í skýrslu fjármálaeftirlitsins um sáttina, sem gerð var við bankann upp á tæplega einn komma tvo milljarða króna og birt var í morgun, eru brot bankans tíunduð.
Villtu um fyrir Bankasýslunni
Ljóst er að bankinn fór ekki að lögum við sölu á hlutabréfum í sjálfum sér og er bankinn jafnframt sagður hafa villt um fyrir Bankasýslu ríkisins við söluna. Stjórn og bankastjóri Íslandsbanka sæta gagnrýni í skýrslunni fyrir að tryggja ekki að bankinn uppfyllti lagakröfur og hafði ekki innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit sem skyldi. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur sagt að hún hyggist ekki ætla segja upp störfum vegna málsins.Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Birnu í dag en samkvæmt svörum frá bankanum mun hvorki Birna né annar aðili innan bankans tjá sig um sáttina í dag og bent er á netfang bankans.
Þá náði fréttastofa tali af Jóni Gunnari Jónssyni forstjóra Bankasýslunnar í morgun sem var í óðaönn að lesa yfir sáttina. Honum fannst óábyrgt að úttala sig um efni sem hann hefði ekki náð að lesa til hlítar og skyldi engan undra því sáttin sjálf er engin smá smíði og telur hátt í hundrað blaðsíður.