Veður

Ört vaxandi lægð nálgast og mun hring­sóla yfir landinu fram að helgi

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má með stífri norðvestanátt sunnan- og vestantil á landinu á morgun.
Reikna má með stífri norðvestanátt sunnan- og vestantil á landinu á morgun. Vísir/Vilhelm

Ört vaxandi lægð nálgast nú landið úr suðri og verður hún skammt suðaustur af landinu í nótt og þá um 977 millibara sem er óvenju lágur þrýstingur miðað við árstíma.

Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að á morgun færist lægðin norður yfir land og grynnist heldur. Lægðin sé þó ekkert á förum, heldur muni hún hringsóla yfir landinu fram að helgi.

Un hvessa með morgninum með rigningu um landið suðaustanvert og má þá búast við hvassviðri eða stormi frá Öræfum og vestur undir Eyjafjöll eftir hádegi í dag. Gular viðvaranir taka gildi á Suður- og Suðausturlandi um hádegi og verða í gildi fram á kvöld.

„Mun hægari vindur og lengst af bjart Norðan- og vestanlands, en þykknar upp með rigningu þar í kvöld, en þá lægir og dregur úr úrkomu suðaustanlands. Stíf norðvestanátt sunnan- og vestantil á landinu á morgun, en suðaustlægari vindur austast. Rigning eða skúrir í flestum landshlutum.

Milt í veðri, hiti að 20 stigum á norðurlandi í dag, en á suðausturlandi á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 8-15 m/s og rigning með köflum, hvassast við ströndina. Hiti 6 til 18 stig, mildast um landið austanvert.

Á fimmtudag og föstudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-10 og allvíða skúrir. Hiti 8 til 15 stig.

Á laugardag: Vaxandi norðaustanátt með rigningu, fyrst um landið norðanvert. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag og mánudag: Ákveðin norðaustan- og norðanátt og rigning, en lengst af úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti 12 til 18 stig sunnantil á landinu, en mun svalara fyrir norðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×